Einstakt tækifæri Vera Einarsdóttir skrifar 1. nóvember 2015 10:00 Johannes Öhman, listrænn stjórnandi Konunglega sænska ballettsins, kom auga á Helgu Kristínu í danskeppninni Stora Daldansen í vor og lýsti áhuga sínum á að fá hana í starfsnám. MYNDIR/GVA
Helgu Kristínu Ingólfsdóttur, sem margir muna eftir úr keppninni Dans dans dans, hefur verið boðið í alþjóðlegt prógramm við Konunglega sænska ballettskólann í Stokkhólmi en samhliða því fær hún tækifæri til að sækja æfingar og starfsnám með nútímadansarmi Konunglega sænska ballettsins. Johannes Öhman, listrænn stjórnandi Konunglega sænska ballettsins, kom að máli við Helgu Kristínu, sem vann Dans dans dans-keppnina ásamt Birki Erni Karlssyni árið 2012, og vildi gefa henni tækifæri til náms. Hún hélt utan í gær og verður í skólanum fram á vor. Johannes kom fyrst auga á Helgu Kristínu í danskeppninni Stora Daldansen sem haldin er í Falun í Svíþjóð ár hvert, en hann er formaður dómnefndar í keppninni sem er fyrir norræna og baltneska dansara og hefur Helga Kristín verið á meðal þátttakenda síðastliðin þrjú ár„Þetta er draumur margra dansara á mínum aldri enda skólinn með þeim virtustu í heimi.“„Fyrsta árið dansaði ég tvö klassísk danssóló en seinni tvö dansaði ég nútímadanssóló. Nútímadans hefur alltaf verið mín sterkasta hlið og í mars síðastliðnum var ég með dans eftir Hannes Þór Egilsson, sem dansaði með Íslenska dansflokknum, og vakti hann mikla athygli. Í kjölfarið lýsti Johannes yfir áhuga sínum á því að fá mig í einhvers konar starfsnám. Fyrir þremur vikum fór ég í prufur hjá Konunglega sænska ballettskólanum og í kjölfarið bauðst mér að koma inn í alþjóðlegt prógramm við skólann en samhliða því fæ ég að vera lærlingur hjá Konunglega sænska nútímadansflokknum,“ útskýrir Helga Kristín sem er að vonum ánægð. „Þetta er frábært tækifæri fyrir mig sem vonandi opnar fleiri dyr. Þetta er draumur margra dansara á mínum aldri enda skólinn með þeim virtustu í heimi.” Helga Kristín byrjaði ung í samkvæmisdönsum en hóf nám við Listdansskóla Íslands 12 ára gömul. „Þetta er mikil viðurkenning fyrir skólann,“ segir skólastjórinn Guðmundur Helgason sem sjálfur stundaði nám við Konunglega sænska ballettskólann á árunum 1991 til 1993. „Íslensku keppendurnir í Stora Daldansen hafa alltaf staðið vel að vígi í nútímadansinum og ber árangur Helgu Kristínar vott um það,“ segir Guðmundur en auk hans og Helgu Kristínar hafa nokkrir Íslendingar til viðbótar stundað nám við skólann. Helga Kristín er á síðasta ári í Versló en hefur samið við skólastjórnendur um að taka það sem hún á eftir í fjarnámi. „Ég útskrifast kannski eitthvað örlítið seinna en ég get bara ekki sleppt þessu tækifæri.“ Helga Kristín segist lánsöm að fá að gera það sem henni finnst skemmtilegast en leggur áherslu á að hún hafi þurft að leggja hart að sér til að ná árangri og haft góða kennara sem hafa haft trú á henni. „Ég hef haft yndislega kennara og kynnst ótrúlega góðu fólki sem hefur stutt við bakið á mér og fyrir það er ég ótrúlega þakklát." Helga Kristín kemur inn í Konunglega sænska ballettskólann á miðri haustönn og fær inni á heimavist skólans. Hún vonast til að fá að æfa sem fyrst með sjálfum dansflokknum og hugsanlega að taka þátt í einhverjum sýningum. Aðspurð segist hún vonast til að fá frekari tækifæri á erlendri grund í kjölfarið og geta farið að starfa við fagið. „Eins mikið og ég elska Ísland þá eru danstækifærin fleiri í útlöndum.“Helga Kristín byrjaði ung í samkvæmisdönsum en hóf nám við Listdansskóla Íslands 12 ára gömul.
Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Fleiri fréttir Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Sjá meira