Erlent

Fjárstuðningur Bandaríkjastjórnar við Grænlendinga veldur uppnámi

Kristján Már Unnarsson skrifar
Kim Kielsen, forsætisráðherra Grænlands, og Carla Sands, sendiherra Bandaríkjanna í Danmörku, í miðið. Myndina birti Landsstjórn Grænlands í dag með fréttatilkynningu um fjárstuðning Bandaríkjastjórnar en hún var tekin síðastliðið haust í Nuuk í heimsókn bandaríska sendiherrans til Grænlands.
Kim Kielsen, forsætisráðherra Grænlands, og Carla Sands, sendiherra Bandaríkjanna í Danmörku, í miðið. Myndina birti Landsstjórn Grænlands í dag með fréttatilkynningu um fjárstuðning Bandaríkjastjórnar en hún var tekin síðastliðið haust í Nuuk í heimsókn bandaríska sendiherrans til Grænlands. Mynd/Naalakkersuisut.

Landsstjórn Grænlands tilkynnti í dag að hún hefði ákveðið að þiggja boð Bandaríkjastjórnar um 12,1 milljón dollara efnahagsstuðning, andvirði 1,8 milljarða króna íslenskra, til ýmissa borgaralegra verkefna á Grænlandi. Þessi aðgerð Bandaríkjamanna hefur valdið uppnámi meðal danskra stjórnmálamanna, hún er sögð ögrandi og til þess gerð að reka fleyg í ríkjasambandið.

Í fréttatilkynningu grænlenskra stjórnvalda segir að Bandaríkin séu að horfa til sviða sem gagnist efnahagsuppbyggingu Grænlands, þar á meðal námaiðnaðar, ferðaþjónustu og menntunar. Verkefni verði valin í nánu samstarfi við Landsstjórn Grænlands en samkvæmt ráðgjöf bandarískra sérfræðinga á vegum utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna.

Haft er eftir Kim Kielsen, forsætisráðherra Grænlands, að það taki tíma að þróa nánari tengsl við önnur lönd.

„En þessar góðu fréttir staðfesta að vinna okkar við að byggja upp uppbyggilegt samband við Bandaríkin ber ávöxt. Það er jákvætt að aukið samstarf Grænlands og Bandaríkjanna endurspeglast í áþreifanlegum árangri í formi fjárstuðnings til verkefna á Grænlandi," segir Kielsen.

Fjárhagsstuðningur Bandaríkjamanna hefur valdið uppnámi í Danmörku í dag.

„Þeir hafa klárlega farið yfir strikið,“ hefur Reuters-fréttastofan eftir Karsten Hønge, þingmanni Sósíalíska þjóðarflokksins, sem á aðild að dönsku ríkisstjórninni.

„Það hefur aldrei gerst áður að svo náinn bandamaður reyni að reka fleyg milli Grænlands og Danmerkur með þessum hætti,“ sagði Karsten Hønge.

Søren Espersen, talsmaður Danska þjóðarflokksins, sem er í stjórnarandstöðu, kallar þetta móðgun við bæði Grænland og Danmörku.

Utanríkisráðherra Danmerkur, Jeppe Kofod, fagnaði hins vegar fjárstyrk Bandaríkjastjórnar. Það væri vilji dönsku stjórnarinnar að aukinn áhugi Bandaríkjanna á norðurslóðum og Grænlandi kæmi grænlensku samfélagi til góða.

Danskir fjölmiðlar hafa meðal annars rifjað upp að innan við tvö ár eru frá því danska ríkisstjórnin veitti Grænlendingum umtalsverðan fjárhagsstuðning til flugvallagerðar.

Sjá einnig hér: Framlag Dana til flugvallagerðar sprengdi ríkisstjórn Grænlands

Grænland komst í heimsfréttirnar síðastliðið sumar þegar Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti yfir vilja sínum til að kaupa Grænland. Þá fékk hann þetta svar frá Kim Kielsen í fréttum Stöðvar 2:


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×