Ósáttir við stækkun hótels Svavar Hávarðsson skrifar 9. júní 2016 08:00 Íbúar í Reykjahlíð eru margir mjög ósáttir við að tapa útsýni yfir Mývatn. Fréttablaðið/Vilhelm
Fundargerðir og umsagnir heimamanna í gögnum Skútustaðahrepps sýna að engin sátt ríkir um stækkun Hótels Reykjahlíðar. Sveitarstjórnin er klofin í málinu og íbúar lýsa furðu sinni á því að svo virðist sem ákveðið hafi verið að ganga gegn yfirlýstri stefnu sveitarfélagsins um uppbyggingu í Reykjahlíð. Eins og Fréttablaðið greindi frá á laugardag eiga áformaðar nýbyggingar við Hótel Reykjahlíð á vegum Icelandair Hotels að rísa langt innan þess 200 metra verndarsvæðis sem er markað hringinn í kringum vatnið og Laxá allt til ósa Skjálfandafljóts, samkvæmt sérlögum um vernd Mývatns og Laxár.Í fundargerð sveitarstjórnar Skútustaðahrepps 31. mars var breytingartillaga skipulagsnefndar á aðal- og deiliskipulagi sveitarfélagsins tekin fyrir og samþykkt með þremur atkvæðum af fimm manna sveitarstjórn. Þar er heimilað að Icelandair Hotels vinni að skipulagi viðbyggingar við Hótel Reykjahlíð á tveimur hæðum. Einn sat hjá við atkvæðagreiðsluna, Sigurður Böðvarsson bóndi á Gautlöndum 1, en Jóhanna Katrín Þórhallsdóttir, hálendisfulltrúi og varaoddviti, greiddi atkvæði gegn tillögunni og lagði fram eftirfarandi bókun: „Ég leggst alfarið gegn svo auknu byggingamagni á umræddri lóð. Er það í samhengi við afstöðu mína í fyrri atkvæðagreiðslum varðandi sambærilegt mál og byggir skoðun mín á háu verndargildi og mikilvægi útsýnis yfir Mývatn á þessum stað.“ Í innsendum umsögnum íbúa kveður við sama tón, en þær eru birtar í fundargerð skipulagsnefndar 17. ágúst. Í umsögn Guðrúnar M. Valgeirsdóttur, Reykjahlíð 1, segir að stækkun hótelsins muni skerða verulega útsýni og rýra verðgildi eignarinnar. Eins vísar Guðrún í greinargerð Aðalskipulags Skútustaðahrepps 2011-2023 þar sem segir: „Vatnsmegin vegarins umhverfis Mývatn skal spornað við frekari nýbyggingum öðrum en þeim sem tengjast bæjar- og húsaþyrpingum sem þar eru fyrir.“ Telur Guðrún að vissulega standi gamla hótelbyggingin svo nærri vatninu „en að áætlanir skuli gera ráð fyrir 2.000 fermetra, stækkun á þeirri byggingu 30 til 40 metra frá bakka Mývatns sætir undrun svo ekki sé fastar að orði kveðið.“ „Fyrr má nú rota en dauðrota í aukningu á byggingarmagni,“ skrifar Ólafur H. Jónsson, fyrir hönd Reykjahlíðar 3. Hann, eins og Guðrún, segir að breyting á aðalskipulagi sé ekki í samræmi við stefnu sveitarstjórnar. Segir hann að svo stór bygging samrýmist varla því sem sveitarstjórn hefur sett sér sem stefnu vestan þjóðvegar, eða vatnsmegin. Fleiri skrifa á sömu nótum, þau Elísabet Sigurðardóttir og Ragnar Davíð Baldvinsson, Reykjahlíð 4, segja því til viðbótar að þeim þyki „einkennileg sú staðhæfing“ að framkvæmdin sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif. Telja þau að stækkun hótelsins hljóti, „með tilheyrandi raski og auknum gestafjölda, að hafa umtalsverð áhrif á umhverfið við vatnið vegna nálægðarinnar.“ Í fundargerð sveitarstjórnar Skútustaðahrepps 31. mars var breytingartillaga skipulagsnefndar á aðal- og deiliskipulagi sveitarfélagsins tekin fyrir og samþykkt með þremur atkvæðum af fimm manna sveitarstjórn. Þar er heimilað að Icelandair Hotels vinni að skipulagi viðbyggingar við Hótel Reykjahlíð á tveimur hæðum. Einn sat hjá við atkvæðagreiðsluna, Sigurður Böðvarsson bóndi á Gautlöndum 1, en Jóhanna Katrín Þórhallsdóttir, hálendisfulltrúi og varaoddviti, greiddi atkvæði gegn tillögunni og lagði fram eftirfarandi bókun: „Ég leggst alfarið gegn svo auknu byggingamagni á umræddri lóð. Er það í samhengi við afstöðu mína í fyrri atkvæðagreiðslum varðandi sambærilegt mál og byggir skoðun mín á háu verndargildi og mikilvægi útsýnis yfir Mývatn á þessum stað.“ Í innsendum umsögnum íbúa kveður við sama tón, en þær eru birtar í fundargerð skipulagsnefndar 17. ágúst. Í umsögn Guðrúnar M. Valgeirsdóttur, Reykjahlíð 1, segir að stækkun hótelsins muni skerða verulega útsýni og rýra verðgildi eignarinnar. Eins vísar Guðrún í greinargerð Aðalskipulags Skútustaðahrepps 2011-2023 þar sem segir: „Vatnsmegin vegarins umhverfis Mývatn skal spornað við frekari nýbyggingum öðrum en þeim sem tengjast bæjar- og húsaþyrpingum sem þar eru fyrir.“ Telur Guðrún að vissulega standi gamla hótelbyggingin svo nærri vatninu „en að áætlanir skuli gera ráð fyrir 2.000 fermetra, stækkun á þeirri byggingu 30 til 40 metra frá bakka Mývatns sætir undrun svo ekki sé fastar að orði kveðið.“ „Fyrr má nú rota en dauðrota í aukningu á byggingarmagni,“ skrifar Ólafur H. Jónsson, fyrir hönd Reykjahlíðar 3. Hann, eins og Guðrún, segir að breyting á aðalskipulagi sé ekki í samræmi við stefnu sveitarstjórnar. Segir hann að svo stór bygging samrýmist varla því sem sveitarstjórn hefur sett sér sem stefnu vestan þjóðvegar, eða vatnsmegin. Fleiri skrifa á sömu nótum, þau Elísabet Sigurðardóttir og Ragnar Davíð Baldvinsson, Reykjahlíð 4, segja því til viðbótar að þeim þyki „einkennileg sú staðhæfing“ að framkvæmdin sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif. Telja þau að stækkun hótelsins hljóti, „með tilheyrandi raski og auknum gestafjölda, að hafa umtalsverð áhrif á umhverfið við vatnið vegna nálægðarinnar.“Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 9. júní 2016
Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Innlent Fleiri fréttir Draga aflvana bát til hafnar nær Öndverðarnesi Rýnt í flókna stöðu Icelandair Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Reynsluboltinn í Hæstarétti hættur: „Þetta var komið gott“ Nýr meirihluti kynnir forgangslistann Keili formlega slitið Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Sjá meira