Íslenski boltinn

Breiða­blik hefði endað á toppnum ef farið hefði verið eftir töl­fræðinni

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Blikar áttu fínt sumar en ef miða má við tölfræði deildarinnar hefði gengið átt að vera enn betra.
Blikar áttu fínt sumar en ef miða má við tölfræði deildarinnar hefði gengið átt að vera enn betra. Vísir/Hulda Margrét

Ef aðeins væri farið eftir tölfræði Pepsi Max deildar karla í sumar hefði Breiðablik endað sem sigurvegari þar líkt og í Pepsi Max deild kvenna. Liðið hefði átt að skora flest mörk í deildinni ásamt því að fá á sig fæst.

Tölfræði að nafni xG hefur rutt sér til rúms undanfarið og tröllríður nú knattspyrnuheiminum eins og við þekkjum hann. Hjörvar Hafliðason, sérfræðingur Pepsi Max Stúkunnar, er til að mynda mikill aðdáandi og ræddi xG tölfræðina í Stúkunni í þaula þann 29. október síðastliðinn. 

Hér að neðan verður farið enn frekar yfir xG sem og aðra tölfræði Pepsi Max deildarinnar í sumar. Innslagið með Hjörvari má svo finna neðst í fréttinni.

xG eða „Expected Goals“ er tölfræði sem segir til um hversu mörg mörk lið eiga að skora miðað við færin sem liðið býr til. Að sama skapi segir xG til um hversu mörg mörk lið eigi að vera búið að fá á sig miðað við færin sem mótherjar þeirra fá. Tölfræðisíðan Wyscout heldur utan um alla leiki Pepsi Max deildar karla og kvenna. Þar má finna töluvert meira en aðeins tölfræði um xG.

Eins og hefur verið greint frá á Vísi hefði Fjölnir átt að enda með 21 stig er Íslandsmótinu var hætt eða 15 stigum meira en þau sex sem liðið fékk í sumar.

Hjörvar notar xG til að styðja þá fullyrðingu að Anton Ari Einarsson hafi átt erfitt uppdráttar í sumar.Vísir/Vilhelm

„Það sem xG getur hjálpað þér að gera er að rökstyðja það sem þú heldur. Ég ætla að henda fram einni fullyrðingu: Anton Ari er ekki búinn að spila vel í sumar. Þá get ég farið í xG og séð að Breiðablik er búið að fá á sig alltof mörg mörk,“ sagði Hjörvar þann 29. október um frammistöðu Breiðabliks í sumar.

Breiðablik hefur fengið á sig 27 mörk í Pepsi Max-deildinni. Samkvæmt xG ætti liðið aðeins hafa fengið á sig 19 mörk, fæst allra liða í deildinni. Ekki nóg með það, Breiðablik hefði einnig átt að skora flest mörk deildarinnar eða 42 talsins í stað þeirra 37 sem liðið skoraði.

Ef kafað er dýpra ofan í fen tölfræðinnar og skoðað hvernig leikir hefðu farið ef miðað væri við xG kemur í ljós að Breiðablik hefði átt að enda á toppi deildarinnar, stigi á undan Valsmönnum. KR væri í 3. sætinu og Víkingar hefðu náð fjórða og síðasta Evrópusætinu.

Þetta hefðu verið efstu fimm lið Pepsi Max deildarinnar ef miðað er við xG tölfræði er varðar stigafjölda.Wyscout

Samantekt Wyscout býður einnig upp á að sjá hvaða lið er mest með boltann í deildinni. Það ætti ekki að koma á óvart að Breiðablik trónir þar á toppnum en liðið eyðir 61.1 prósent leikja sinna með boltann. Þar á eftir eru Víkingar með 59.4 prósent á meðan Íslandsmeistarar Vals eru í 5. sæti með 51.3 prósent.

Samantektin segir okkur einnig að Breiðablik átti flest skot í deildinni [299] ásamt því að snerta boltann oftast í vítateig andstæðinganna [436]. Það útskýrir eflaust af hverju Blikar voru einnig það lið sem fékk flestar vítaspyrnur [10] sem og hornspyrnur [129]. Það voru hins vegar KR-ingar sem áttu flestar fyrirgjafir í deildinni [415].

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, er mikill áhugamaður um tölfræði. Hann getur verið sáttur með margt í sumar en það er ljóst að lið hans þarf mun fleiri stig á næstu leiktíð.Visir/Bára

Þá eru KR það lið sem fékk á sig fæst skot í sumar [167]. Kemur Breiðablik þar á eftir með aðeins einu meira [168] og í raun öruggt að ef bæði lið hefðu leikið jafn marga leiki væru Blikar einnig á toppnum yfir fæst skot á sig í Pepsi Max deild karla sumarið 2020.

Að lokum var Breiðablik einnig það lið sem mótherjar náðu fæstum sendingum að meðaltal í röð gegn. Það þýðir að meðaltali unnu Blikar boltann eftir 6.76 sendingar mótherja þeirra.

Eins áhugaverð og þessi tölfræði er þá eru það stigin sem skipta máli og þar báru Valsarar af í sumar. Það er spurning hvort Blikar nái að breyta þessum tölfræði yfirburðum sínum í stig sumarið 2021.


Tengdar fréttir

Lennon bestur og Val­geir efni­legastur

Síðasti þáttur tímabilsins af Pepsi Max Stúkunni fór fram í kvöld. Guðmundur Benediktsson og spekingar hans gerðu þar upp tímabilið í Pepsi Max deild karla sem blásin var af í síðustu viku.

Sjáðu fimm fallegustu Origo mörk ársins

Pepsi Max Stúkan hefur valið fimm fallegustu Origo mörk ársins í Pepsi Max deild karla í fótbolta. Tilkynnt verður um besta markið í veglegum lokahófsþætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×