Sport

Tommy Marquez um Katrínu Tönju: Á lof skilið fyrir það sem hún gerði 2020

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Katrín Tanja Davíðsdóttir getur verið stollt af því sem hún afrekaði á þessu erfiða ári.
Katrín Tanja Davíðsdóttir getur verið stollt af því sem hún afrekaði á þessu erfiða ári. Instagram/@katrintanja

Einn þekktasti sérfræðingurinn í CrossFit heiminum fór yfir viðburðaríkt ferðalag Katrínar Tönju Davíðsdóttur upp á verðlaunapallinn á nýloknum heimsleikunum en þessi leið hennar var svo sannarlega þyrnum stráð.

Tommy Marquez segir að ef árið 2020 hafi kennt okkur eitthvað þá sér það aldrei að afskrifa íslensku CrossFit konuna Katrínu Tönju Davíðsdóttur.

Tommy Marquez hjá Mourning Chalk up vefnum fór yfir ótrúlegt ár hjá Katrínu Tönju Davíðsdóttir í nýrri grein á síðunni en sjaldan hefur CrossFit íþróttamaður sýnt aðra eins þrautseigju þegar á móti blæs eins og Katrín Tanja á þessu erfiða ári.

„2020 CrossFit tímabilið hefur boðið okkur upp á margar kennslustundir og ein af þeim er að afskrifa aldrei Katrínu Davíðsdóttur,“ skrifaði Tommy Marquez í grein sinni á Mourning Chalk up.

„Tvöfaldi heimsmeistarinn hefur byggt upp einn besta ferilinn í sögu CrossFit með þeim hæfileika sínum að koma til baka eftir mótlæti og að standa sig best þegar hún er með bakið upp við vegg. Annað sætið hennar á heimsleikunum í ár en eitt áhrifamesta dæmið um þetta þegar við skoðum það sem hún gekk í gegnum á þessu ári,“ skrifaði Tommy Marquez.

Tommy Marquez rifjaði það upp hvernig Katrín Tanja kom til baka eftir vonbrigðin af því að missa af heimsleikunum 2014. Hún svaraði því með því að verða heimsmeistari tvö ár í röð. Hann skrifar líka um það hvernig Katrín Tanja komst í gegnum lokaniðurskurðinn á heimsleikunum í fyrra.

Marquez segir líka frá því þegar Katrín Tanja meiddist á baki og þurfti að hætta við keppni á Dubai CrossFit meistaramótinu í desember 2019. Við tóku erfiðir mánuðir og hún var ekki búinn að vinna sig almennilega út úr þeim meiðslum á Rogue Invitational í júní þar sem hún endaði í þrettánda sæti af sautján keppendum.

Katrín Tanja byrjaði heldur ekki vel í fyrri hlutanum en tryggði sér sæti í ofurúrslitunum með stórkostlegum seinni degi.

„Eins og í sönnum Davíðsdóttur stíl þá kom sleðahundurinn á fullri ferð inn í seinni daginn og byrjaði á því að vinna tvær fyrstu greinarnar. Þetta var allt dæmigert fyrir Katrínu Davíðsdóttur sem tryggði sér með þessu sæti meðal fimm bestu á sjöttu leikunum í röð,“ skrifaði Marquez.

View this post on Instagram

Every year is a new year, and every year we need to keep rising. And you can have a very bad year and it s not a great year for you, and again, that doesn t define you either. So each year everyone is getting better. There s always some point of a weekend I get a workout that fires me up. Something that I've been really tapping into this year is truly appreciating and just knowing how good these girls are. I know they re trying everything to get better, and I want to rise to that and then raise the bar for them, too. @katrintanja, second-Fittest Woman on Earth and Spirit of the Games Winner in 2020 #CrossFit #CrossFitGames #Fitness #CrossFitWomen #CFGHistory #womensupportingwomen #workout #sports edited by @jay.vera

A post shared by CrossFit Games (@crossfitgames) on

Í ofurúrslitunum var staðan ekki alltof góð hjá Katrínu Tönju eftir fjórar fyrstu greinarnar. Sigur í þeirri fimmtu þegar æfingin var tvöfölduð í miðjum klíðum breytti hins vegar öllu.

„Þetta var meðbyrinn sem hún þurfti og hún var meðal þriggja efstu það sem eftir var af leikunum. Hún komst á verðlaunapall í fjórða sinn á síðustu sex árum og með því að ná í silfrið hefur hún unnið allar gerðir af verðlaunapeningum á leikunum,“ skrifaði Marquez.

„Í hverju skrefi á leiðinni þá leit út fyrir það að Katrín Davíðsdóttir þyrfti að sætta sig við það að þetta yrði vonbrigðartímabil en við hvert mótlæti þá vann hún sig til baka og sýndi hugarfar sigurvegarans sem hefur fært henni tvenn gullverðlaun á heimsleikunum,“ skrifaði Marquez.

Katrín Tanja hefur verið meðal fimm efstu á sex heimsleikum í röð og uppskera er tvö gull (2015, 2016), eitt silfur (2020), eitt brons (2018) og svo fjórða sætið árið 2019 og fimmta sætið árið 2017.

„Hennar velgengi á undanförnum árum er ein sú besta í sögu heimsleikanna það má segja að hún sé sú næsta á eftir núverandi yfirburðum Tiu-Clair Toomey. Katrín á líka skilið lof fyrir hvernig henni tókst alltaf að koma sterk til baka á 2020 tímabilinu,“ skrifaði Tommy Marquez eins og sjá má hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×