Viðskipti erlent

Saka Google um að vera einokunarhringur

Kjartan Kjartansson skrifar
Forsvarsmenn Google hafa alltaf hafnað því að fyrirtækið skaði samkeppni í netleit og auglýsingum. Fyrirtækið veiti þjónustu sem sé gagnleg neytendum.
Forsvarsmenn Google hafa alltaf hafnað því að fyrirtækið skaði samkeppni í netleit og auglýsingum. Fyrirtækið veiti þjónustu sem sé gagnleg neytendum. AP/Jeff Chiu

Bandaríska dómsmálaráðuneytið ætlar að stefna Google í dag fyrir meinta misnotkun á markaðsráðandi stöðu í netleit sem hamli samkeppni og skaði neytendur. Málið er sagt það stærsta sinnar tegundar frá því að bandarísk yfirvöld stefndi tæknirisanum Microsoft fyrir rúmlega tuttugu árum.

AP-fréttastofan segir að málið gegn Google nú gæti verið það fyrsta gegn stóru tæknifyrirtækjunum en ráðuneytið og Alríkisviðskiptastofnun Bandaríkjanna (FTC) eru með aðra risa eins og Apple, Amazon og Facebook til rannsóknar.

Google og móðurfélag þess Alphabet hafa lengið verið sökuð um að notfæra sér yfirburðastöðu í netleit og auglýsingum til þess að þurrka út samkeppni og maka krókinn. Evrópusambandið hefur lagt marga milljarða dollara sektir á Google vegna þess en gagnrýnendur fyrirtækisins segja slíkt ekki hrökkva til.

Samkvæmt heimildum AP heldur dómsmálaráðuneytið því fram að Google hafi meðal annars greitt símaframleiðendum milljarða dollara til þess að tryggja að leitarvél þess sé alltaf sjálfvalin í vefvöfrum á snjallsímum. Google er með um 90% markaðshlutdeild í leitarvélum á netinu en forsvarsmenn þess hafa allt tíð þvertekið fyrir að það skaði samkeppni.

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur lengi haft horn í síðu Google. Hann og aðrir bandarískir íhaldsmenn hafa haldið því fram án haldbærra sannana að leitarvélin feli á einhvern hátt efni frá íhaldsmönnum.

Demókratar á Bandaríkjaþingi hafa einnig verið gagnrýnir á Google en af öðrum ástæðum. Niðurstaða rannsóknar dómsmálanefndar fulltrúadeildar þingsins, sem demókratar stýra, var að Google væri í einokunarstöðu í netleit.


Tengdar fréttir

Evrópusambandið með tæknirisana í sigtinu

Evrópusambandið er sagt vera að undirbúa það að herða til muna reglugerðir sem gilda um stór alþjóðleg tæknifyrirtæki á yfirráðasvæði sambandsins.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×