Fór lítið fyrir Martin í fyrsta tapi Valencia Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 13. október 2020 21:26 Martin og félagar hafa átt betri leiki en í kvöld. Oscar J. Barroso/Getty Images
Martin Hermannsson og félagar í Valencia máttu þola fimm stiga tap gegn Barcelona í EuroLeague í kvöld. Lokatölur 71-66 gestunum frá Katalóníu í vil. Var þetta fyrsta tap Valencia í keppninni á tímabilinu. Bæði lið leika eðli málsins samkvæmt í efstu deild á Spáni þar sem Börsungar eru með fullt hús stiga að loknum þremur leikjum á meðan Valencia hefur aðeins unnið tvo af fimm. Þau mættust í EuroLeague [aðal keppni álfunnar] og fór það svo að gott gengi Börsunga hélt áfram. Eftir jafnan fyrri hálfleik var það Valencia sem leiddi með tveimur stigum þegar liðin gengu til búningsherbergja, staðan þá 35-33. Heimamenn áttu hins vegar aldrei viðreisnar von í 3. leikhluta þar sem þeir skoruðu aðeins níu stig gegn 21 hjá gestunum. Þó svo að Valencia hafi unnið síðasta leikhluta með fimm stiga mun þá dugði það einfaldlega ekki til. Lokatölur eins og áður sagði 71-66 Börsungum í vil sem hafa nú unnið tvo leiki og tapað einum í EuroLeague. Var þetta fyrsta tap Valencia í keppninni til þessa en liðið hefur einnig leikið þrjá leiki. Martin skoraði aðeins eitt stig, tók eitt frákast og gaf tvær stoðsendingar í kvöld.
Körfubolti Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Mikil spenna fyrir lokahringinn Golf Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira