Lífið samstarf

Viltu vinna gistingu á Akureyri?

Acco
Acco Luxury Apartments og Acco Guesthouse eru staðsett í hjarta Akureyrar.
Acco Luxury Apartments og Acco Guesthouse eru staðsett í hjarta Akureyrar. Daníel Starrason

Eftir mikla ferðagleði Íslendinga í sumar verður spennandi að sjá hvernig veturinn verður hjá landanum. Margir aðilar í ferðaþjónustu búa sig undir veturinn með því að höfða til fólks með tilboðum. Þar er vert að nefna Acco Luxury Apartments og Acco Guesthouse á Akureyri.

Helga Björk Eiríksdóttir eigandi Acco á Akureyri hvetur fólk til að njóta ferðalaga um landið í haust og vetur.

„Íslendingar voru mjög duglegir að heimsækja okkur í sumar og við Norðlendingar hvetjum fólk til þess að halda áfram að ferðast um landið í haust og vetur,“ segir Helga Björk Eiríksdóttir, eigandi Acco á Akureyri en á facebook síðu Acco er nú í gangi leikur þar sem hægt er að vinna gistingu fyrir fjóra með morgunmat á Berlín og dekri í Bjórböðunum á Árskógsströnd.

„Við hefjum haustið með þessum skemmtilega leik til að kynna frábær haust- og vetrartilboð  á gistingu hjá okkur,“ segir Helga Björk. „Íbúðirnar eru mjög þægilegar fyrir fjölskyldufólk og hópa en í hverri íbúð er fullbúið eldhús með uppþvottavél og öllum helstu græjum. Einnig eru þvottavélar í öllum íbúðum sem getur komið sér afar vel á ferðalögum. Við erum vel staðsett í hjarta bæjarins og spennandi afþreying og veitingastaðir eru í göngufæri.“

Afar vel fer um gesti á Acco.Daníel Starrason

„Akureyri er mikil vetrarperla og Norðurland allt er paradís heim að sækja á haustin og yfir vetrartímann. Ég vona að við verðum svo „heppin“ að snjórinn komi snemma enda er frábært að koma hingað á skíði en fram að skíðavertíð má stunda hér margs konar útivist svo sem fjallgöngur, hjólreiðar og siglingar. Það er afar öflugt menningarlíf hér á svæðinu sem við vonum að glæðist þegar samkomutakmarkanir verða rýmkaðar og að hér verði jafn skemmtilegt í vetur eins og undanfarin ár. Má þar nefna leikhús, tónleika og listsýningar. Við vonumst til að sjá sem flesta hér fyrir norðan í vetur.“

Íbúðirnar eru vel búnar og þægilegar fyrir fjölskyldur á ferð og hópa.Daníel Starrason

Vetrartilboð Acco má finna á acco.is en sem dæmi má nefna að gisting í íbúð fyrir allt að sex gesti í þrjár nætur kostar einungis kr. 60.000. Vikudvöl í íbúð sem rúmar allt að átta manns kostar kr. 110.000.- Vert er að taka fram að hægt er að nýta ferðagjöfina til að greiða fyrir gistingu á Acco.

Hér er hægt að taka þátt í Facebook leik Acco.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×