Var bara eins árs þegar hinn hluti besta markatvíeykis 2. deildar byrjaði að skora í meistaraflokki Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. ágúst 2020 22:15 María Lena Ásgeirsdóttir og Karen Sturludóttir hafa skorað samtals 22 mörk fyrir HK í 2. deild kvenna í sumar. myndir/ksi.is
Tveir markahæstu leikmenn 2. deildar kvenna í fótbolta koma úr röðum HK. Þetta eru þær María Lena Ásgeirsdóttir og Karen Sturludóttir. Þrettán ára aldursmunur er á þessum marksæknu leikmönnum. María Lena er fædd 2002 en Karen 1989. Karen var aðeins þrettán ára þegar hún skoraði sitt fyrsta mark í meistaraflokki. Hún gerði tvö mörk í 0-4 sigri HK/Víkings á HSH í Ólafsvík í 1. deild kvenna 16. júlí 2003. Þá var María Lena nýorðin eins árs. Hún fæddist 11. maí 2002. Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari hjá HK, benti á þessa skemmtilegu staðreynd á Twitter. María Lena og Karen Sturlu. leikmenn HK eru markahæstar í 2.deild kvenna. María Lena var nýorðin eins árs þegar Karen skoraði sitt fyrsta mark í deildarkeppni fyrir meistaraflokk #liðfolksins— Ómar Ingi (@OmarIngiGud) August 26, 2020 Eftir síðasta tímabili ákváðu HK og Víkingur að hætta að tefla fram sameiginlegu liði í meistaraflokki kvenna sem félögin höfðu gert um árabil. HK hóf leik í 2. deild í sumar og það er óhætt að liðið hafi farið vel af stað. HK-ingar eru á toppi deildarinnar með 24 stig, átta stigum á undan Grindvíkingum sem eru í 2. sæti. HK hefur unnið átta af níu leikjum sínum og er með markatöluna 34-2. María Lena hefur skorað þrettán af mörkum HK og Karen níu en þær eru, eins og áður sagði, markahæstar í deildinni. Karen tók fram skóna í vetur eftir nokkurra ára hlé til að hjálpa ungu liði HK á fyrsta tímabili þess í deildarkeppni í meistaraflokki kvenna. Næsti leikur HK er gegn sameiginlegu liði Fjarðabyggðar, Hattar og Leiknis F. í Kórnum á laugardaginn. Á þriðjudaginn sækir HK svo ÍR heim.
Íslenski boltinn HK Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira