Maraþon í mars – nýtt íslenskt sjónvarpsefni Stöð 2 kynnir 11. mars 2020 16:45 Patrekur Jaime er 19 ára samfélagsmiðla áhrifavaldur og í þáttunum Æði fylgjum við Patreki í daglegu amstri.
Stöð 2 Maraþon er stútfull af spennandi efni nú í mars. Nýir íslenskir þættir og þúsundir klukkustunda af kvikmyndum og sjónvarpsþáttum fyrir alla fjölskylduna. Nýtt efni bætist við í hverri viku og enginn þarf að láta sér leiðast heima. Hér er hægt að kaupa áskrift. Patrekur Jaime: Æði - nýr raunveruleikaþátturPatrekur Jaime: Æði er raunveruleikaþáttur um íslenskan áhrifavald og er þáttaröðin sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Patrekur Jaime er 19 ára samfélagsmiðla áhrifavaldur, fæddur og uppalinn á Akureyri en á ættir að rekja til Chile. Í Æði fylgjum við Patreki, eða Patta eins og vinir hans kalla hann, í daglegu amstri sem ungur maður í hröðum og síbreytilegum heimi. Við kynnumst vinum Patta og hver veit nema land verði lagt undir fót… Patrekur á sér stóra drauma og hvað sem kann að gerast, þá verður það algjört æði! Hér er aðeins brot af því sem finna má inni á Stöð 2 Maraþon í mars:NostalgíaJúlíana Sara er með króníska nostalgíu og ætlar að fá útrás fyrir henni með því að gramsa í gömlum íslenskum sjónvarpsþáttum. Áhugavert verður að sjá hvaða perlur hún rekst á þar en meðal efnis sem hún tekur fyrir er t.d. Idol stjörnuleit, Ástarfleyið og Viltu vinna miljón.Klippa: Nostalgía HeimsóknFrábærir þættir með Sindra Sindrasyni sem lítur inn hjá íslenskum fagurkerum. Heimilin eru jafn ólík og þau eru mörg en eiga það þó eitt sameiginlegt að vera sett saman af alúð og smekklegheitum. Sindri hefur líka einstakt lag á að ná fram því besta í viðmælendum sínum.Klippa: Heimsókn sýnishornSteinda ConVið fylgjumst með Steinda heimsækja margar af skrítnustu, skemmtilegustu og furðulegustu ráðstefnum sem haldnar eru í heiminum. Steindi fer með Hulla á Drachen Fest í Þýskalandi (sem er risastór hlutverkaleikahátíð), Önnu Svövu á Brony Con (ráðstefna fyrir aðdáendur My Little Pony), Bergi Ebba á UFO ráðstefnu í Arisona (ráðstefna um geimverur og þá sem segjast hafa hitt geimverur), betri helmingnum á Fetish Con (þarfnast ekki frekari útskýringa), Dóra DNA á óbyggðahátíð í Ástralíu og síðast en ekki síst með mömmu sinni til að keppa um heimsmeistaratitilinn í luftgítar sem fram fer í Finnlandi ár hvert.Klippa: Steinda Con sýnishornBakað með SylvíuÖnnur þáttaröð með Sylvíu Haukdal sem töfrar fram dýrindis kökur og kræsingar ásamt því að kenna okkur galdurinn á bak við glæstar veitingar fyrir veislur og vinaboð.WestworldÞriðja þáttaröð þessara hörkuspennandi þátta úr smiðju J.J. Abrams, Lisu Joy og Jonathan Nolan sem byggðir eru á sögu Michaels Crichton. Við tökum strax upp þráðinn frá atburðum síðustu þáttaraðar þar Delores yfirgaf þemagarðinn sem hún hafði búið í alla sína tíð. Í raunheimum kynnist hún Calab og tilveru vélmenna utan öryggis garðsins. Maeve er hins vegar komin í nýjan Delos-garð þar sem þemað er Ítalía undir stjórn fasista í seinni heimstyrjöldinni.Klippa: WestworldDeadWater Fell Breskir spennuþættir í hæsta gæðaflokki með David Tennant í aðalhlutverki. Þegar Tom Kendrick missir fjölskyldu sína í skelfilegum eldsvoða vakna grunsemdir um upptök eldsins. Í kjölfarið myndast mikil spenna og tortryggni og allir virðast hafa eitthvað að fela í því sem áður virtist friðsælt samfélag. Klippa: Deadwater FellGrand Design Australia Frábærir þættir þar sem fylgst er með stórkostlegum endurbótum á heimilum þar sem oftar en ekki er einblínt á nútímahönnun, orkunýtni, hvernig á að hámarka nýtingu á plássi og útsýni. Hér sjáum við fjölskyldur og einstaklinga leggja allt í sölurnar til þess að eignast sitt fullkomna draumaheimili.Klippa: Grand Design Australia sýnishornNo Offence 3 Eftir að Deening og teymi hennar glutrar frá sér máli raðmorðingjans reynir lögreglan að bæta það upp með rannsókn á nýju, hættulegu eiturlyfi. Þegar námsmaður finnst látinn af völdum ofskömmtunar beinir Miller eiturlyfjasérfræðingur teyminu á slóðir hugsanlegrar eiturlyfjaverksmiðju. Þessi kynning er unnin í samstarfi við Stöð 2.
Bíó og sjónvarp Mest lesið Potter-stjarna harmar hvernig fór með Rowling Bíó og sjónvarp Ekki með mönnum á hennar aldri því „þeir eru allir látnir“ Lífið Gefi raunsanna mynd af stefnumótahremmingum trans kvenna Bíó og sjónvarp Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið Minningar um líf sem er að hverfa Lífið Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Lífið Swing og hópkynlíf fyrir byrjendur! Lífið „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ Lífið Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“ Lífið Óstundvísi Steina sögð kosta tugi milljóna dollara Lífið Fleiri fréttir Taktu þátt í Ford Fantasy leik Bestu deildar karla Ný vörulína lagar litabletti í húð The House of Beauty fagna sex ára afmæli með látum Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sætu sænsku vörurnar sem farnar eru á flug um allan heim „Probi Female er það eina sem hefur virkað fyrir mig“ SENSAI í Hagkaup í 30 ár Minnkar kláða og ertingu í húð barnsins „Hárið á mér síkkar bókstaflega á hraða ljóssins“ Taktu þátt í BabyShowerleik Vísis Sjá meira