Handbolti

Guð­jón Valur skoraði fimm er PSG tapaði sínu fyrsta stigi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Guðjón Valur flýgur inn úr horninu í leiknum í kvöld.
Guðjón Valur flýgur inn úr horninu í leiknum í kvöld. vísir/getty

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fimm mörk er PSG tapaði sínum fyrsta stigum í vetur er liðið gerði jafntefli Nantes, 29-29, í hörkuleik í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Heimamenn í Nantes voru 16-15 yfir í hálfleik en mikið jafnræði var með liðunum í síðari hálfleik. Liðin skiptust á forystunni en allt var jafnt er tíu sekúndur voru eftir.

Ekkert mark var skorað síðustu 75 sekúndur leiksins og liðin deildu því stigunum.







Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fimm mörk úr sex skotum en markahæstur PSG var Sander Sagosen með ellefu mörk.

Fyrir leik kvöldsins hafði PSG unnið alla sextán leiki sína og töpuðu þeir þar með fyrsta stiginu í kvöld.

Þeir eru með sex stiga forskot á toppi deildarinnar en Nantes er í 2. sætinu með 27 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×