Innlent

Gul við­vörun alls staðar vegna sér­lega djúprar lægðar sem nálgast landið

Atli Ísleifsson skrifar
Eins og staðan er nú tekur viðvörunin gildi klukkan 3 aðfararnótt föstudagsins og gildir til klukkan 21.
Eins og staðan er nú tekur viðvörunin gildi klukkan 3 aðfararnótt föstudagsins og gildir til klukkan 21. Veðurstofan

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörðun alls staðar á landinu á föstudaginn, 14. febrúar, vegna sérlega djúprar lægðar sem nálgast nú landið úr suðvestri. Spár gera ráð fyrir þrýstingi í lægðarmiðju niður í 930 hPa.

Á vef Veðurstofunnar segir að búast megi við austlægum stormi, roki eða ofsaveðri, þar sem hvassast verður sunnantil á landinu framan af degi. Víða verði snjókoma eða slydda, úrkomumest sunnan- og austanlands.

„Hlýnandi veður, rigning á láglendi um landið sunnanvert og við austurströndina seinnipartinn með hita 1 til 5 stig, en vægt frost fyrir norðan. Talsvert hægari vindur á landinu um kvöldið.

Víðtækar samgöngutruflanir eru líklegar, ekkert ferðaveður er á meðan viðvörunin er í gildi. Líkur eru á foktjóni, sérílagi sunnantil á landinu. Fólki er bent á að sýna varkárni til að fyrirbyggja slys og festa lausamuni eins og frekast er kostur. Einnig má búast má við hárri sjávarstöðu vegna áhlaðanda,“ segir í tilkynningunni.

Í dag er spáð norðan kalda eða strekkingi með éljagangi norðanlands, en væntanlega léttir til sunnan heiða. Frost verður á bilinu 1 til 6 stig síðdegis og kólnar meira í kvöld. Heldur hægari vindur á morgun, áfram líkur á éljum norðantil á landinu og frost 3 til 13 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×