Endur­­koma hjá Totten­ham og sæti í 16-liða úr­­slitunum | Sjáðu mörkin

Anton Ingi Leifsson skrifar
Son fagnar sigurmarkinu í kvöld.
Son fagnar sigurmarkinu í kvöld. vísir/getty

Tottenham er komið í 16-liða úrslit enska bikarsins eftir 3-2 sigur á Southampton í endurteknum leik liðanna í kvöld.

Mörkin úr leiknum má sjá með því að smella hér.

Leikurinn í kvöld var ansi fjörugur. Tottenham komst yfir á 12. mínútu er skot Tanguy Ndombele fór af Jack Stephens og í netið.

Á 34. mínútu var röðin komin að hinum funheita Shane Long sem fylgdi á eftir markvörslu Hugo Lloris og kom boltanum í netið.







Rúmlega stundarfjórðungi fyrir leikslok var það Danny Ings sem kom Southampton yfir með frábærri afgreiðslu en sú forysta stóð ekki lengi.

Á 78. mínútu jafnaði Lucas Moura metin með skoti fyrir utan teig og á 87. mínútu fengu þeir vítaspyrnu. Á punktinn steig Heung-Min Son og hann skoraði af miklu öryggi.







Ekki urðu mörkin fleiri og Jose Mourinho og lærisveinar komnir í 16-liða úrslitin. Þeir mæta Norwich í næstu umferð.

Sextán liða úrslitin verða spiluð 3. til 5. mars:

Sheffield Wednesday - Manchester City

Reading - Sheffield United

Chelsea - Liverpool

West Brom - Newcastle

Leicester - Birmingham

Derby - Manchester United

Tottenham - Norwich

Portsmouth - Arsenal

 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira