Fjórða tap Leeds í síðustu fimm leikjum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sammy Ameobi (til vinstri) kom Nottingham Forest á bragðið gegn Leeds United.
Sammy Ameobi (til vinstri) kom Nottingham Forest á bragðið gegn Leeds United. vísir/getty

Nottingham Forest lagði Leeds United að velli, 2-0, í lokaleik dagsins í ensku B-deildinni.

Þetta var fjórða tap Leeds í síðustu fimm deildarleikjum. Liðið er áfram í 2. sæti deildarinnar en nú með jafn mörg stig og Fulham.

Forest er komið upp í 4. sæti deildarinnar með 54 stig, einu stigi minna en Leeds.

Sammy Ameobi kom Forest yfir á 31. mínútu með skoti á nærstöngina sem Kiko Casilla tókst ekki að verja.

Tyler Walker gulltryggði svo sigur Forest þegar fimm mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira