Bandaríkjamenn yfirgáfu ræðisskrifstofuna í Chengdu Sylvía Hall og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa 27. júlí 2020 06:40 Íbúar Chengdu fylgdust með því í morgun þegar starfsfólk yfirgaf ræðisskrifstofuna og tók niður bandaríska fánann. Vísir/Getty
Starfsfólk bandarísku ræðisskrifstofunnar í Chengdu í Kína yfirgaf í morgun starfsstöð sína og hélt heim til Bandaríkjanna. Kínverjar höfðu gefið Bandaríkjunum frest til mánudags til að loka skrifstofunni en sú ákvörðun er hluti af vaxandi deilu ríkjanna. Áður höfðu Bandaríkjamenn fyrirskipað lokun kínversku ræðisskrifstofunnar í Houston í Texas. Eftir að starfsfólkið hafði tekið niður bandaríska fánann og yfirgefið bygginguna fóru starfsmenn kínverskra stjórnvalda þar inn og tóku hana yfir. Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins segist vonsvikin með þessa þróun mála en skrifstofan í Chengdu hefur verið starfrækt í þrjátíu og fimm ár og hefur þjónað vesturhluta Kína og Tíbet. Þegar skrifstofunni var lokað í Chengdu söfnuðust margir íbúar borgarinnar saman fyrir utan húsnæði hennar með kínverska fánann og tóku sjálfsmyndir, að því er fram kemur á vef BBC. Bandaríkjamenn saka Kínverja um njósnir og á skrifstofan í Houston að hafa verið einskonar miðstöð þeirra njósna.
Kína Bandaríkin Mest lesið Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi Innlent Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir Innlent „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Innlent Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Innlent Brestir í MAGA-múrnum Erlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Erlent Hækka hitann í Breiðholtslaug Innlent Fleiri fréttir Segir Trump hafa persónuleika alkóhólista Brestir í MAGA-múrnum Lögðu lengi á ráðin um herlög Tólf ára drengur grunaður um morð í Malmö Heimta enn héruð Úkraínu sem þeir halda ekki Ósátt við lögreglu sem leitar enn morðingjans Segjast hafa myrt átta sæfarendur til viðbótar FDA samþykkir tvö ný lyf gegn ónæmum lekandabakteríum Vill fimm milljarða Bandaríkjadala frá BBC Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Sjá meira