Stóreflis björg hrynja úr hlíðum ofan Ísafjarðarbæjar Jakob Bjarnar skrifar 17. júlí 2020 15:33 Niður hlíðina, fyrir ofan heimili Teits, koma nú niður stóreflis björg. „
Svona var þetta á Hjallaveginum fyrir nokkrum mínútum,“ segir Teitur Magnússon vélamaður á Ísafirði og birtir myndband á Facebooksíðu sinni þar sem sjá má hvar stór björg koma á fleygiferð niður hlíðina. Sem er fyrir ofan húsið hans. „Jájá, þetta er svona norðan hvellur,“ segir Teitur pollrólegur. En það eru margir slegnir sem séð hafa myndbandið því þar virðast ógnarkraftar að verki. Svakalegar hamfarir. En Hjallavegur er í Ísafjarðarbæ þannig að þetta er bara skammt frá bænum. „Þetta stoppar nú sem betur fer svona fimmtíu til hundrað metrum hér fyrir ofan. Ég hef búið hér í 13 ár og þetta gerist reglulega. Alltaf smá grjóthrun hérna,“ segir Teitur. Hann segir svo frá að hann hafi heyrt drunur og farið út á svalir. Og þá blasti þetta við. „Ég dró upp símann og tók vídeó af þessu. Við höfum verið að fylgjast með þessu. Lækur sem er hér fyrir ofan var orðinn brúnn. Þá kemur ekkert á óvart þó það komi grjót hér niður.“ Það sem gerist í vatnsveðri og roki eins og nú er að jarðvegurinn losnar og þar með björg sem rúlla þá niður hlíðina. „Losnar um,“ segir Teitur. Stóreflis björg hrynja úr hlíðum ofan Ísafjarðarbæjar „Svona var þetta á Hjallaveginum fyrir nokkrum mínútum,“ segir Teitur Magnússon vélamaður á Ísafirði og birtir myndband á Facebooksíðu sinni þar sem sjá má hvar stór björg koma á fleygiferð niður hlíðina. Sem er fyrir ofan húsið hans. „Jájá, þetta er svona norðan hvellur,“ segir Teitur pollrólegur. En það eru margir slegnir sem séð hafa myndbandið því þar virðast ógnarkraftar að verki. Svakalegar hamfarir. En Hjallavegur er í Ísafjarðarbæ þannig að þetta er bara skammt frá bænum. Teitur Magnússon er pollrólegur þó flestum sem sjá myndband hans af björgunum sem koma á fleygiferð niður hlíðina standi hreint ekki á sama. „Þetta stoppar nú sem betur fer svona fimmtíu til hundrað metrum hér fyrir ofan. Ég hef búið hér í 13 ár og þetta gerist reglulega. Alltaf smá grjóthrun hérna,“ segir Teitur. Hann segir svo frá að hann hafi heyrt drunur og farið út á svalir. Og þá blasti þetta við. „Ég dró upp símann og tók vídeó af þessu. Við höfum verið að fylgjast með þessu. Lækur sem er hér fyrir ofan var orðinn brúnn. Þá kemur ekkert á óvart þó það komi grjót hér niður.“ Það sem gerist í vatnsveðri og roki eins og nú er að jarðvegurinn losnar og þar með björg sem rúlla þá niður hlíðina. „Losnar um,“ segir Teitur. Og að björgin komi úr Gleiðarhjöllum sem eru ofan Ísafjarðabæjar.
Ísafjarðarbær Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Erlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Fleiri fréttir Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Sjá meira