Innlent

Lögreglumenn í sóttkví ekki fengið greitt

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Mynd úr safni.
Mynd úr safni. Vísir/Vilhelm

Í tveimur tilvikum þar sem lögreglumenn hafa þurft að fara í sóttkví vegna afskipta af einstaklingum sem grunur lék á að væru smitaðir af Covid-19 var það afstaða yfirmanna þeirra að þeir ættu ekki rétt til greiðslna meðan á sóttkví stendur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá BSRB.

Í tilkynningunni segir að BSRB hafi sent öllum lögreglustjórum á landinu bréf þar sem farið er fram á að lögreglumenn sem þurfa að fara í sóttkví vegna gruns um Covid-19 smit verði greitt fyrir þann tíma sem þeir þurfa að vera í sóttkví og vaktafrí frestist þar til þeir eru lausir úr henni.

Gera kröfu um að lögreglumenn fái greitt

„Lögreglumenn eru framlínufólk í öllum skilningi þess orðs. Þeir mæta almennt fyrstir á vettvang og hafa ekki val um það hvort þeir sinni útkalli þegar eftir þjónustu þeirra er leitað. Þeir eru oftar en ekki ómeðvitaðir um það hvað bíður þeirra og eru berskjaldaðir gagnvart utanaðkomandi ógn eins og smitsjúkdómum,“ segir meðal annars í bréfinu sem lögreglustjórunum var sent.

Í tilkynningunni er það sagt með öllu óásættanlegt að framlínustarfsfólki eins og lögreglumönnum sé ekki bættur sá frítími sem þeir séu neyddir til að eyða í sóttkví eftir að hafa verið útsettir fyrir smiti af lífshættulegum sjúkdómi í starfi sínu.

„BSRB gerir þá kröfu að lögreglumenn fái greiddar yfirvinnustundir fyrir þann tíma sem þeir verja í sóttkví utan skilgreindra vakta. Það sé eðlilegt endurgjald fyrir þá áhættu sem þeir taka í sínum störfum og þá staðreynd að þeir glata dýrmætum frítíma af þeim sökum,“ segir að lokum í tilkynningunni, en hana má nálgast í heild sinni hér.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×