Spiluðu ekki vegna hættu á smiti: „Margt annað mikilvægara í lífinu heldur en fótboltaleikir“ Anton Ingi Leifsson skrifar 29. júní 2020 10:00 Þórsarar gerðu góða ferð austur í gær en voru án tveggja leikmanna. Heimasíða Þórs/Páll Jóhannesson
Tveir leikmenn Þórs, Sigurður Marinó Kristjánsson og Jónas Björgvin Sigurbergsson, spiluðu ekki með liðinu í gær vegna kórónuveirunnar en þetta staðfesti Páll Viðar Gíslason, þjálfari liðsins, í samtali við Fótbolti.net eftir leikinn. Þórsarar unnu 3-2 sigur á Leikni Fáskrúðsfirði í Lengjudeildinni í gær eftir að hafa lent 1-0 undir á fyrstu mínútu leiksins. Þórsarar því með sex stig eftir fyrstu tvær umferðirnar. Eins og greint var frá um helgina greindist leikmaður Stjörnunnar í Pepsi Max-deild karla með kórónuveiruna en Leiknir spilaði við Stjörnuna í síðustu viku í Mjólkurbikarnum. Páll segir að þar af leiðandi hafi tveir leikmenn liðsins ekki viljað spila leikinn gegn Leiknismönnum í gær af ótta við veiruna. „Þeir vinna í heilbrigðisgeiranum þannig ég ber fulla virðingu fyrir ákvörðun þeirra, styð hana og mun gera það aftur ef þessi staða kemur upp aftur: að einhverjir leikmenn telji það ekki boðlegt að það sé spilaður fótboltaleikur því það er margt annað mikilvægara í lífinu heldur en fótboltaleikir. Við stöndum allir saman í þessu og styðjum allar ákvarðanir sem eru teknar í sambandi við þetta mál. Ég virði þeirra ákvörðun og ekkert vandamál," sagði Páll.
Þór Akureyri Íslenski boltinn Lengjudeildin Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Akureyri Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Sjá meira