Tíska og hönnun

FÍT-verðlaunin 2020: Prent

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Gullverðlaunahafar í flokknum prent.
Gullverðlaunahafar í flokknum prent.

Alls voru 440 verk innsend til FÍT-verðlaun­anna 2020. Innsend verk í keppnina hafa aldrei verið fleiri en úrslitin verða kynnt hér á Vísi næstu daga. Í flokknum Prent voru veitt gull- og silfurverðlaun í nokkrum undirflokkum. Þeir eru stakar myndlýsingar, myndlýsingarraðir, myndlýsingar fyrir auglýsingar og herferðir, veggspjöld, bókakápur, bókahönnun og svo voru einnig veitt verðlaun í sérstökum nemendaflokki. Lista yfir alla verðlaunahafa má finna hér neðar í fréttinni.

FÍT verðlaunahátíðin átti að fara fram í mars en vegna ástandsins í samfélaginu var ákveðið að tilkynna verðlaunahafana hér á Vísi og halda formlega afhendingu síðar. Næstu daga verða tilkynnt verðlaun í öllum 21 flokkunum og verður þessu skipt upp í fjórar tilkynningar. Á föstudaginn klukkan 09:00 verður svo tilkynnt hvaða gullverðlaunahafi hlýtur hin eftirsóttu aðalverðlaun FÍT. Verðlaunað verður það verk sem þykir eftirminnilegt og áhrifamikið í sínum flokki og góður fulltrúi fyrir sköpunargáfu Íslendinga í samkeppnum á alþjóðavísu.

Stakar myndlýsingar

Gull-CELL7

Gullverðlaun

Cell7 — Ragna Kjartansdóttir

Frábærir litir og stílbrigði, nostrað við smáatriði, áferð passar vel við og letur vel unnið. Samspil allra þátta glæsilegt og nær þannig að koma krafti viðfangsefnisins til skila. Stendur vel eitt og sér og verk sem mun eldast vel.

Hönnun: Eysteinn Þórðarson, Aton.JL

Myndlýsingaraðir

Gull-Hnutar

Gullverðlaun

Hnútar

Einstaklega metnaðarfullt heildrænt verk og vel tekist til við að tvinna saman tvo ólíka stíla. Regla í óreglunni og um leið stjarnfræðilegur balans í öllu. Hér hefur verið nostrað við hvern krók og kima og allir stafir verða fallegt verk.

Hönnun: Viktor Weisshappel Vilhjálmsson, Ulysses

Silfur-Sipp

Silfurverðlaun

Sipp, Sippsippanipp og Sippsippanippsippsúrumsipp — Bókabeitan

Fjörugar teikningar sem fólk á öllum aldri á auðvelt með að gleyma sér yfir. Gott vald á ringulreiðinni.

Hönnun: Blær Gudmundsdottir

Silfur-Vesturbyggd

Silfurverðlaun

#31-45 — Vesturbyggð

Flott sería sem er mjög teygjanleg, með mýkt og gott flæði. Gefur afar góða tilfinningu fyrir viðfangsefninu.

Hönnun: Atli Þór Árnason, Hörður Lárusson og Vera Voishvilo, Kolofon

Myndlýsingar fyrir auglýsingar og herferðir

Gull-Megavika Domino´s

Gullverðlaun

Megavika Domino’s

Fersk og lifandi nálgun, vel útfærð hugmynd, smjattað á öllum smáatriðum, litir og element harmonera skemmtilega saman. Mikil gleði í öllu og falleg viðbót við myndheim megavikunnar. Það er auðvelt að týna sér í myndinni því það er alltaf hægt að sjá eitthvað nýtt. Stendur vel eitt og sér og höfðar til allra. Algjört partý í munninum og einfaldlega málar bæinn rauðan.

Hönnun: Hrafn Gunnarsson, Gunnhildur Karlsdóttir, Jón Páll Halldórsson, Þorvaldur Sævar Gunnarsson, Brandenburg

Veggspjöld

Gull-Sýningar Íslenska dansflokksins

Gullverðlaun

Sýningar Íslenska dansflokksins

Uppsetning til fyrirmyndar, nútímalegt, áhugaverður og formfastur leikur með ramma. Umgjörðin er sterk, nær vel utan um heildarútlit og fangar einkenni dansflokksins. Fallegur myndastíll sem býður uppá marga möguleika. Skemmtilegt samspil milli týpógrafíu og ljósmyndar.

Hönnun: Hörður Kristbjörnsson, Daníel Freyr Atlason, Döðlur

Silfur - Halloween í Paradís

Silfurverðlaun

Halloween í Paradís — Bíó Paradís

Frumleg og skemmtileg hugmynd sem er svo sannarlega hönnuð út fyrir kassann. Býður upp á mikinn leik og gestir geta tekið þátt í hönnunarferlinu. Veggspjald sem virkar sem miðill með skemmtilega gagnvirkni. Uppsetningin er falleg og viðeigandi teikning í týpógrafíu.

Hönnun: Viktor Weisshappel Vilhjálmsson, Ulysses

Silfur-Fullt af allskonar fyrir gleðilega hátíð

Silfurverðlaun

Fullt af allskonar fyrir gleðilega hátíð — Kringlan

Að búa til helgimyndir út frá neysluhyggju er djörf og frumleg nálgun. Listilega vel gert alla leið, listrænt og íkonískt. Fyrirmynd fyrir önnur fyrirtæki.

Hönnun: Kontor Reykjavík

Bókakápur

Silfur - Bækur í áskrift

Silfurverðlaun

Bækur í áskrift — Angústúra

Vel heppnuð útfærsla á kápu sem stendur fyrir ritröð. Falleg litanotkun og stílhrein hönnun sem er hilluprýði og eykur safngildi bókanna.

Hönnun: Snæfríð & Hildigunnur

Silfur-Hunangsveiði

Silfurverðlaun

Hunangsveiði — Angústúra

Látlaust, fágað en grípandi þar sem letur og myndskreyting vinna vel saman. Afar vönduð myndskreyting og fallegur kjölur.

Hönnun: Helga Gerður Magnúsdóttir, HG&M

Bókahönnun

Gull - Gjöfin til Íslenzkrar Alþýðu

Gullverðlaun

Gjöfin til Íslenzkrar Alþýðu — Listasafn Alþýðusambands Íslands

Faglegt og metnarfullt þrekvirki sem stenst allar væntingar. Vel hugað að smáatriðum og virðing borin fyrir umfjöllunarefninu.

Hönnun: Arnar Ingi Viðarsson, Arnar Fells Gunnarsson, &&& Studio

Silfur - Celestial Bodies

Silfurverðlaun

Celestial Bodies — Listaháskóli Íslands

Frumleg og áhugaverð framsetning, þar sem formið hentar viðfangsefninu vel. Handverk sem kallar á mann.

Hönnun: Helga Dögg

Silfur - Bækur í áskrift

Silfurverðlaun

Bækur í áskrift — Angústúra

Vel heppnuð útfærsla á kápu sem stendur fyrir ritröð. Falleg litanotkun og stílhrein hönnun sem er hilluprýði og eykur safngildi bókanna.

Hönnun: Snæfríð & Hildigunnur

Nemendaflokkur

Gull-Falin tákn

Gullverðlaun

Falin tákn

Virkilega vel heppnuð endurhönnun táknakerfis fyrir hljóðræna upplifun. Falleg og stílhrein hönnun sem rímar vel við nótnaformið. Uppsetning falleg þar sem táknin njóta sín vel.

Hönnun: Rán Ísold Eysteinsdóttir

Silfur-Veðrabrigði

Silfurverðlaun

Verðabrigði

Falleg og vel hönnuð bók. Teikningar vel gerðar og skemmtilega uppsettar með letri. Blái litatónninn hentar viðfangsefninu vel. Bókin er fallega innbundin.

Hönnun: Hugrún Lena Hansdóttir

Klukkan 9 í dag var tilkynnt um verðlaunahafa í flokknum Mörkun. Á fimmtudag verður tilkynnt klukkan 09:00 um verðlaun í Skjáflokknum og klukkan 12 verður afhjúpað hverjir hljóta verðlaun í flokknum Auglýsingar. Aðalverðlaun FÍT verða svo tilkynnt á föstudaginn klukkan 09.

FÍT, FÉLAG ÍSLENSKRA TEIKNARA, var stofnað 23. nóvember 1953. FÍT keppnin er haldin árlega og þar er keppt um það besta í grafískri hönnun og myndskreytingum á Íslandi. Innsendingar í keppnina eru einnig opnar fyrir öðrum en FÍT meðlimum, enda er markmið keppninnar að endurspegla það besta í grafískri hönnun og myndlýsingum á Íslandi en ekki eingöngu það besta meðal félagsmanna.


Tengdar fréttir

FÍT-verðlaunin 2020: Mörkun

Næstu þrjá daga verður tilkynnt hvaða verk hljóta FÍT-verðlaunin árið 2020. Innsend verk í keppnina hafa aldrei verið fleiri. Í flokknum Mörkun eru veitt gull- og silfurverðlaun í undirflokkunum firmamerki, mörkun fyrirtækja, menningar- og viðburðarmörkun, geisladiskar og plötur og í flokkinum umbúðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×