Erlent

Bretar sagðir ætla að koma á samkomubanni

Kjartan Kjartansson skrifar
Tómlegt var um að litast á Leicester-torgi í miðborg Lundúna í gær.
Tómlegt var um að litast á Leicester-torgi í miðborg Lundúna í gær. Vísir/EPA

Fjöldasamkomur verða bannaðar til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar á Bretlandi í næstu viku. Stórviðburðum og íþróttaviðburðum hefur meðal annars verið frestað eða aflýst vegna heimsfaraldursins nú þegar.

Bresk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd fyrir að bregðast ekki nógu ákveðið við faraldrinum. Fram að þessu hefur ríkisstjórnin ekki gripið til aðgerða sem önnur ríki hafa beitt gegn veirunni, þar á meðal samkomubanns.

Nú hefur Reuters-fréttastofan eftir heimildum sínum innan bresku ríkisstjórnarinnar að ráðherrar séu að leggja drög að því að taka fyrir ýmsar tegundir opinberra viðburða, þar á meðal fjöldasamkoma, í samráði við vísindaráðgjafa og lækna. Lagafrumvarp verði lagt fram í næstu viku sem gefi ríkisstjórninni heimild til að banna samkomur og bæta samtökum og fyrirtækjum tjónið.

Enska úrvalsdeildin í knattspyrnu frestaði öllum leikjum þangað til í apríl í gær og þá var Lundúnamaraþoninu frestað sömuleiðis. Elísabet drottning afboðaði sig á samkomur sem eru fyrirhugaðar í næstu viku. Boris Johnson, forsætisráðherra, hefur einnig frestað sveitarstjórnar- og borgarstjórakosningum sem áttu að fara fram á Englandi í maí um ár.

Skoska heimastjórnin hafði áður mælst til þess að hætt yrði við allar samkomur fimm hundrað manns eða fleiri.

Óttast áhrifin á veitinga- og hótelgeirann

Samtök breskra veitingastaða og hótela vara stjórnvöld nú við því að fjöldi starfa á hótelum, kaffihúsum og veitingastöðum eigi eftir að tapast af völdum kórónuveirufaraldursins áður en maímánuður rennur upp hlaupi þau ekki undir bagga með iðnaðinum.

Í bréfi sem þau rituðu Rishi Sunak, fjármálaráðherra, lýsa þau faraldrinum sem ógn við tilvist iðnaðarins, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Þau vilja meðal annars fá heimild til þess að segja starfsfólki upp tímabundið til að bregðast við hrapandi eftirspurn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×