Friðrik Ingi: Glórulaust ef mótinu verður ekki frestað Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. mars 2020 22:28 Friðrik Ingi segir undarlegt að leikir kvöldsins í Domino's deild karla hafi farið fram. vísir/daníel
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Þórs Þ., furðar sig á því að leikir kvöldsins í Domino‘s deild karla hafi farið fram. „Það var skrítið andrúmsloft hérna og maður hefur séð meiri ákafa inni á vellinum,“ sagði Friðrik Ingi eftir tapið fyrir Keflavík, 78-63, í kvöld. „Við áttum í vandræðum í frákastabaráttunni og nýttum sóknirnar okkar ekki nógu vel.“ Friðrik Ingi segir að leikmenn Þórs muni safna kröftum á morgun og á sunnudaginn verði æfing. Hann segir framhaldið óljóst en býst við því að keppni Domino‘s deild karla verði frestað. „Ég geri fastlega ráð fyrir því að við fáum fréttir um að þessu móti verði aflýst eða frestað um einhvern tíma. Annað væri glórulaust. Ég held að þetta sé eina deildin þar sem enn er verið að spila. Ég á ekki von á öðru en að menn taki skynsamlega ákvörðun,“ sagði Friðrik Ingi. „Ef þú frestar leikjum í öðrum meistaraflokkum í sömu íþróttagrein en lætur leiki fara fram í þessari deild spyr maður sig hvort það sé einhver munur á lífum okkar hér í kvöld heldur en annarra. Hefði ekki verið nær að fresta hjá öllum strax í dag eða hjá öllum frá og með sunnudeginum. Annað hvort er þetta heilbrigðismál eða ekki. Mér fannst mjög undarlegt að leikir kvöldsins færu fram.“
Dominos-deild karla Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Fótbolti Dagskráin í dag: Sófasunnudagur frá morgni til kvölds Sport Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Fótbolti Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Enski boltinn Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Fótbolti Fleiri fréttir Dallas komið í úrslit Vestursins Elvar stigahæstur í grátlegu tapi Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ „Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“ Kristófer Acox: „Fokkin passion“ Sjá meira