Innlent

Tafir á Reykja­nes­braut eftir að bíll fór út af veginum

Atli Ísleifsson skrifar
Frá vettvangi slyssins.
Frá vettvangi slyssins. Aðsend

Tafir eru á umferð á Reykjanesbraut eftir að bíll fór út af veginum nærri Krýsuvíkurafleggjara skömmu eftir hádegi.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði eru ekki slys á fólki, en verið sé að olíuhreinsa svæðið. Þá er unnið að því að koma bílnum í burtu.

Útkallið kom um klukkan 12:20.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×