Stjörnuspá Siggu Kling – Meyjan: Þarft ekki að sjá allar tröppurnar 6. júlí 2018 09:00
Elsku hjartans Meyjan mín, nú er sumarið svo sannarlega að byrja í þínu lífi og þá erum við að tala um næstu mánuði, ekkert vera að spá í hvort þú öðlist frægð eða frama því ef þú slakar aðeins á þá raðast framtíðin upp á fullkominn máta. Það er alveg á hreinu þú munt aldrei hverfa í mannmergðinni því að kraftur þinn gefur einskæra birtu sem bæði mun lýsa þér og öðrum, ekki öfunda neinn og ekki sjá eftir neinum eru lykilatriði á næstu mánuðum. Bara þessi einfalda setning sem ég er að senda þér mun hjálpa þér að klífa tröppurnar framundan og ekki í eina mínútu skaltu hugsa þú þurfir að sjá allar tröppurnar til þess að stíga upp í þá fyrstu. Ef þú ætlar að vera of vandvirk og gera allt fullkomið þá gengur ekkert upp. Þetta er eins og þegar einhver er að mála mynd og finnst hún aldrei vera nógu góð, alltaf að laga til, redda smáatriðunum, þá muntu svo sannarlega ekki gera margar myndir. Sálin þín hefur mikla skarpskyggni og dýpt svo ekki nota þessa hæfni þína til að ráðast á sjálfa þig, skoðum aðeins til dæmis fótboltann, ef þú ætlar að hugsa lengi um næsta skref þá muntu aldrei skora neitt mark. Það eina sem getur stoppað þig er hræðsla við að sjá hver þú ert og hvað þú vilt. Þú hefur svo mikla breidd í mannlegum samskiptum og ert „Ráðagóði Róbótinn“, svo um leið og þú hættir að gagnrýna sjálfa þig og hugsar um hvað þú ráðleggur öðrum, þá skaltu í raun og veru skoða að þú getur ráðlagt sjálfum þér ef þú sýnir sjálfum þér sömu mildi. Þú ert spretthlaupari, en ekki langhlaupari svo öll þessi tímabil þar sem þú hefur tekið stóran sprett og virkilega gert hlutina munu sýna þér á næstu fjórum mánuðum að þú sért manneskjan sem svo virkilega mætti senda á Ólympíuleikana. Það er ekkert sem þú getur ekki breytt eða gert á næstu mánuðum, svo stattu upp og taktu sprettinn! Og skilaboðin eru að sjálfsögðu: Núna er tíminn til að taka á sprettFrægar Meyjur: Ragna Lóa Stefánsdóttir íþróttakona, Manuela Ósk fyrirsæta, Björk Eiðsdóttir ritstýra, Andrea fatalistamaður, Claudia Schiffer fyrirsæta, Edda Björgvinsdóttir leikkona, Eva Dögg Sigurgeirsdóttir, ritstjóri og tískugúrú, Herdís Jóhannesdóttir athafnakona, Beyoncé Knowles söngkona, Gylfi Þór Sigurðsson, Eiður Smári Guðjohnsen, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona, Annie Mist crossfittari, Logi Pedro Stefánsson tónlistarmaður, Selma Ragnars, fatahönnuður Íslands, Lalli Johns góðkunningi lögreglunnar, Sema Erla Serdar, baráttukona, Eydís Ósk hjúkrunarkona.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Stjörnulífið: Sjóðheitar í gusugufu Lífið Eyþór Arnalds og Ástríður bíða eftir barni Lífið Báðust afsökunar á niðrandi hljóðkækjum Bíó og sjónvarp Andrew á Louvre Menning Flestir fróa sér til viðbótar við kynlíf með maka Lífið Farin frá Form Lífið „Íslensk snjókoma“ og ruslabílarnir nýttir í moksturinn Lífið Sneri lífi sínu við eftir að faðir hans fyrirfór sér Lífið Henti keilukúlu, melónu og örbylgjuofni niður úr átta metra hæð Lífið Forstjórinn sem fór á atvinnuleysisbætur Áskorun Fleiri fréttir „Íslensk snjókoma“ og ruslabílarnir nýttir í moksturinn Farin frá Form Henti keilukúlu, melónu og örbylgjuofni niður úr átta metra hæð Sneri lífi sínu við eftir að faðir hans fyrirfór sér Eyþór Arnalds og Ástríður bíða eftir barni Stjörnulífið: Sjóðheitar í gusugufu Flestir fróa sér til viðbótar við kynlíf með maka „Hugurinn skiptir öllu máli“ Við erum tengdari en nokkru sinni en höfum aldrei verið jafn einmana Fékk yfir hundrað skilaboð á dag Krakkatía vikunnar: Bollur, sólmyrkvar og skilti Yfirgefinn apaungi finnur huggun í apabangsa úr Ikea Áhorfið rýkur upp þegar minnst er á Ísland Frægðin steig Magna til höfuðs en aðeins í skamma stund Minnist sonar síns og styður við börn í sorg Fréttatía vikunnar: Lilja, eitur og krulla Bleikar kollur, gellur og gaurar Einn sá efnilegasti ætlar að verða sá fyrsti inn á Ólympíuleika Halla Vilhjálms flutt í Fossvoginn Á leið á flugvöllinn þegar fluginu var flýtt Hitti Gísla á Uppsölum á skyggnilýsingafundi Frá einni ofurbombu til annarrar Eric Dane er látinn Þeim fjölgar sem skilja Íslensk Barbí og Ken: „Litaði bara hárið og fór í sprey-tan“ Vigdís og Gerald Häsler selja húsið Nýtt verk frá Martin en samt kvarta aðdáendur Falsmyndir af sólmyrkva vella fram: „Gervigreindin er plága“ Ekkja Hefners varar við birtingu nektarmynda úr dagbókum hans Verður alltaf meyr þegar hann hugsar um lífsbjörgina Sjá meira