UNICEF á Íslandi safnar fyrir börn í Sýrlandi Þorgils Jónsson skrifar 15. ágúst 2013 11:37 Þessi unga stúlka er meðal þeirra tæplega milljón barna sem hafa flúið stríðsátök í Sýrlandi. Mynd/UNICEF
Þau áheit sem UNICEF á Íslandi aflar í Reykjavíkurmaraþoninu um þar næstu helgi munu renna óskipt til neyðaraðgerða í Sýrlandi. Neyð barna vegna borgarastyrjaldarinnar þar í landi eykst sífellt og nú eru tæplega milljón börn meðal þeirra sem flúið hafa land auk þeirra þriggja milljóna sem þjást innanlands í Sýrlandi vegna átakanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá UNICEF á Íslandi, auk þess sem ítrekuð er þörfin á frekari aðstoð. UNICEF er meðal annars að störfum í Zaatari-flóttamannabúðunum í Jórdaníu, þar sem 120.000 flóttamenn dvelja, þar af er helmingurinn börn, en þetta eru næststærstu flóttamannabúðir í heimi og í raun næstfjölmennasta borg Jórdaníu sem stendur. UNICEF útvegar allt vatn í þeim búðum og dreifir þar samtals fjórum milljónum lítra af hreinu vatni á dag. Auk þess hefur UNICEF dreift miklu magni hjálpargagna í Zaatari-flóttamannabúðunum og veitt börnum sálrænan stuðning „UNICEF er Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna og við höfum þungar áhyggjur af framvindunni í Sýrlandi,“ segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi í tilkynningu. „Börn eru meirihluti þeirra sem eru á flótta – og flest þeirra eru mjög ung. Við ákváðum því að láta áheit hlaupara í ár renna til neyðaraðgerðanna. Margir hér heima hafa haft samband við okkur, eru áhyggjufullir og hafa spurt hvernig þeir geta styrkt hjálparstarfið í Sýrlandi. Almenningur getur því núna bæði hlaupið til styrktar börnum frá Sýrlandi og heitið á aðra sem gera það,“ segir Stefán. „Það er vel hægt að hjálpa og við sjáum árangur af starfinu á hverjum einasta degi. Barnadauði í stærstu flóttamannabúðunum í Jórdaníu er sem dæmi miklu lægri en það sem við höfum séð þar sem neyðarástand af sömu stærðargráðu hefur ríkt. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður hefur einnig tekist að koma í veg fyrir mæðradauða. Þetta eru góðar fréttir. Þegar fleiri flýja eykst þörfin fyrir aðstoð og við þurfum því að ná að auka viðbrögðin enn frekar.“ Margvíslegar ógnir steðja að börnum í flóttamannabúðum, fyrir utan bein áhrif af átökunum, þar sem þau eiga á hættu að verða fórnarlömb barnaþrælkunar og mansals. Því hefur UNICEF lagt mikla áherslu á barnavernd. Auk þess hafa samtökin útvegað tíu milljónum manna hreint vatn í Sýrlandi og nágrannaríkjunum, auk þess sem UNICEF og samstarfsaðilum hefur tekist að bólusetja nærri 2,5 milljónir barna gegn mislingum, lífshættulegum sjúkdómi. Þrátt fyrir afar erfiðar aðstæður í borginni Homs hefur UNICEF dreift hjálpargögnum í borginni, þar á meðal á þeim svæðum þar sem ástandið er ótryggast, svo sem í Al Waer. Yfir 50 hjúkrunarteymi hafa auk þess farið um með færanlegar heilsugæslustöðvar og komið sér fyrir á stöðum í Sýrlandi þar sem öryggi er lítið og fólk hrætt við að fara út úr hverfum sínum. Heilsugæslan er þannig færð í þeirra næsta nágrenni. Það sem af er ári hafa teymin náð til yfir 180.000 barna.Á heimasíðu UNICEF á Íslandi má nálgast upplýsingar um hvernig megi styrkja starfið.
Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Innlent Ted Turner er látinn Erlent Fleiri fréttir „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Sjá meira