Skurðir á kynfærum hryssu - lögreglan kölluð til Erla Hlynsdóttir skrifar 12. maí 2011 13:28 Mynd úr safni Getty
Lögð hefur verið fram kæra til lögreglunnar á Egilsstöðum um meint dýraníð eftir að áverkar, sem taldir eru af völdum eggvopns, fundust á innanverðum kynfærum hryssu. Þetta staðfestir Hjörtur Magnason, héraðsdýralæknir á Egilsstöðum. Um er að ræða tvo skurði í skeið hryssunnar, eins og sjö sentimetra langa. Ekki hafa komið fram vísbendingar um hver var þarna að verki. Héraðsdýralæknir var kallaður til á sunnudag eftir að hestamaður varð var við grunsamlega áverka og óeðlilega blæðingu úr skeið hryssu. „Manni bregður nú við að sjá svona," segir Hjörtur. Hestamaðurinn var í útreiðartúr á svæðinu ásamt eiginkonu sinni þegar hann tók eftir blóðblettum aftan á lærum umræddrar hryssu. Eftir komu í hesthús skoðaði hann blettina, lyfti taglinu og uppgötvaði þá blæðingu úr skeiðinni. Við nánari athugun kom í ljós skurður í neðra skeiðaropi og einhvers konar búlga innar í skeið. Hafði viðkomandi þá samband við héraðsdýralækni. „Ég á mjög erfitt með að sjá hvernig þessir áverkar gætu verið af völdum hryssunnar sjálfrar eða annarra dýra," segir Hjörtur og telur því að ekki sé um annað en mannaverk að ræða. Lögregla var kölluð til og tók myndir af áverkum. Hjörtur telur að á þeim tíma hafi áverkarnir verið á bilinu 8 til 24 klukkustunda gamlir. „Ég legg til í skýrslu að þetta verði skráð sem meint dýraníð," segir Hjörtur. Enginn liggur undir grun um verknaðinn. Hjörtur hefur aldrei séð viðlíka áverka á hestum en segist hafa heyrt um það þegar hann var við nám í Svíþjóð að dæmi væri um að fólk misþyrmdi dýrum illilega, og þá jafnvel með eggvopni.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Missti hönd í mótmælunum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira