Bæjarfulltrúar í erfiðri stöðu Freyr Bjarnason skrifar 27. mars 2014 07:00 Ármann Kr. Einarsson í pontu á bæjarstjórnarfundinum á miðvikudaginn. Fréttablaðið/Stefán
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, setti spurningamerki við tímasetningu tillögu Ómars Stefánsson, bæjarfulltrúa Framsóknarflokks í fyrradag um að starf bæjarfulltrúa verði fullt starf. Ármann taldi hana ekki við hæfi vegna þeirra kjaradeilna sem nú eru í gangi á milli kennara og ríkisins. Ármann bætti við að hann teldi ekki rétt að bæjarfulltrúar skuli sjálfir ákveða launin sín. „Ég hef lagt til að það verði gert á öðrum vettvangi, jafnvel með tengingu til Sambands íslenskra sveitarfélaga. Það er ómöguleg staða að við séum að ákveða launin okkar. Við erum sett í erfiða stöðu,“ sagði Ármann. Umræður sköpuðust um mikla launahækkun bæjarfulltrúa ef starfið færi úr 27 prósentum í 100 prósent, ef miðað yrði við þingfarakaup eins og kom fram í fyrri tillögu Ómars. Hún var ekki lögð fram í bæjarráði. „Hins vegar hefur þingfarakaup verið notað til viðmiðunar mjög víða,“ sagði Ármann. „Það sem er gott við það er að kjaradómur ákveður þóknunina. Þá þarf bæjarstjórnin ekkert að fjalla um neitt slíkt. Það er dálítið sérstakt að taka mið af kennaralaunum því við erum þátttakendur í þeim kjaraviðræðum.“
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira