Eiður og Margrét Lára knattspyrnumenn ársins 9. desember 2008 12:48 Margrét Lára Viðarsdóttir hefur sópað að sér verðlaunum síðustu misseri.
Eiður Smári Guðjohnsen og Margrét Lára Viðarsdóttir hafa verið útnefnd knattspyrnumenn ársins í karla- og kvennalfokki af Knattspyrnusambandi Íslands. Það var leikmannaval KSÍ sem stóð að þessu vali í fimmta sinn, en að valinu koma fyrrum landsliðsmenn, þjálfarar og forystumenn í hreyfingunni. Veitt eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hvorum flokki, en bæði Eiður Smári og Margrét Lára eru nú að taka við þessum verðlaunum í fjórða skipti. Karlaflokkur: Eiður Smári Guðjohnsen varð í öðru sæti spænsku deildarinnar með liði sínu Barcelona og komst í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu. Hann lék auk þess sex landsleiki og skoraði í þeim þrjú mörk og er markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi. Í öðru sæti varð Veigar Páll Gunnarsson sem átti frábært ár með norska liðinu Stabæk og var lykilmaður í liðinu þegar það tryggði sér sinn fyrsta meistaratitil í haust. Hann tók þátt í sex landsleikjum og skoraði eitt mark. Í þriðja sæti varð svo Grétar Rafn Steinsson sem gekk í raðir Bolton í byrjun árs og hefur átt fast sæti í byrjunarliðinu allar götur síðan. Hann lék fimm landsleiki á árinu og náði að skora mark. Kvennaflokkur: Margrét Lára Viðarsdóttir fór á kostum með liði sínu Val í sumar þegar liðið varð íslandsmeistari og varð markadrottning Landsbankadeildarinnar fimmta árið í röð. Hún varð einnig markadrottning undankeppni EM þar sem hún skoraði 14 mörk þegar íslenska liðið tryggði sér þátttöku á lokamótinu. Margrét Lára hefur skorað 43 mörk í 46 landsleikjum. Í öðru sæti varð Hólmfríður Magnúsdóttir hjá KR sem varð í öðru sæti á Íslandsmótinu og fór svo á kostum þegar KR varð bikarmeistari þar sem hún skoraði þrennu í úrslitaleiknum. Hólmfríður var líka í stuði með landsliðinu og skoraði fjögur mörk í átta leikjum. Í þriðja sæti var Dóra María Lárusdóttir hjá Val sem skoraði 15 mörk í 17 leikjum með Íslandsmeisturunum í sumar. Hún lék alla tólf leiki landsliðsins og skoraði tvö gríðarlega mikilvæg mörk í síðari úrslitaleiknum við Íra í umspilinu.
Íslenski boltinn Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira