Má hirða fangelsin 13. október 2005 14:32
Fari svo að alríkisdómari taki völdin af Kaliforníu og færi fangelsiskerfi ríkisins undir stjórn alríkisstjórnarinnar virðist einum manni vera alveg sama. Sá heitir Arnold Schwarzenegger og er ríkisstjóri Kaliforníu. "Sama er mér. Hann má hirða það. Ekki græt ég það," sagði Schwarzenegger þegar hann var spurður hvort dómarinn ætlaði sér að láta verða af hótun sinni um að skipa nýjan stjórnanda yfir fangelsiskerfi ríkisins, sem er rándýrt og að flestra mati stjórnlaust. Spurningarinnar var Schwarzenegger spurður eftir að hann ræddi við Thelton E. Henderson alríkisdómara í hálftíma. Schwarzenegger kveðst ekki hafa spurt Henderson um fyrirætlanir sínar en taldi líklegra að dómarinn myndi velja að starfa með yfirvöldum í ríkinu en að taka völdin af þeim. Í síðasta mánuði tilkynnti Henderson fylkisstjórninni í Kaliforníu að vegna þess hversu mikil áhrif sérhagsmunahópar hefðu á stjórn fangelsismála, hversu kostnaðarsamt það væri orðið og stjórnlaust væri honum skapi næst að taka völdin af fylkisstjórninni og fela þau einhverjum sem kynni með þau að fara. Schwarzenegger virðist ekki hafa mikið meiri trú á fangelsiskerfinu. "Þegar ég varð ríkisstjóri blasti við mér fangelsiskerfi í upplausn, hulið þagnarhjúp þar sem enginn tók neina ábyrgð, hvorki fjárhagslega eða annars konar," sagði ríkisstjórinn þegar hann heimsótti fangelsið í Mule Creek. Fangelsið í Mule Creek er reyndar að sumu leyti lýsandi fyrir vandann í fangelsiskerfi Kaliforníu. Það var byggt fyrir 1.750 fanga en þar eru nú vistaðir 3.700 fangar. Schwarzenegger leit þó til kostanna við fangelsið og benti á að þar væri boðið upp á verknám og aðra menntun með það að markmiði að endurhæfa fanga. Það markmið hefur orðið að láta undan á undanförnum árum þegar refsingar hafa verið hertar og föngum fjölgað gríðarlega.
Erlent Fréttir Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Sjá meira