Flóðið ruddi öllu á undan sér 13. október 2005 14:32
Gríðarleg rigning hleypti af stað flóðum sem settu allt á annan endann þegar þau ruddust um götur enska bæjarins Boscastle í Cornwall. Fimmtán manns var saknað í gær og hafði ekkert heyrst til þess. Lögregla hélt þó í vonina um að fólkið hefði farið í ferðalag án þess að láta nokkurn vita. "Ég hef aldrei séð neitt þessu líkt," sagði ferðalangurinn Wayne Grundy við fréttastofu Sky. "Regnið helltist niður og breytti götunum í fljót. Bílarnir byrjuðu að fljóta niður aðalgötuna og þaðan út á haf. Ég sá meira að segja flutningabíl og tvo bíla skolast yfir brú," bætti hann við. Fjölda fólks þurfti að flytja á brott með þyrlum. Fólk hafðist við á ólíkustu stöðum. Sumum var bjargað úr bílum, öðrum af þökum húsa sinna og enn öðrum úr trjám. Nokkrir voru fluttir á sjúkrahús, sumir þjáðust af ofkælingu en einhverjir urðu fyrir beinbrotum. Talið er að flóðaldan sem skall á bænum hafi náð alla vega eins metra hæð og meira en 60 kílómetra hraða. Það dugði til þess að flóðið hreif með sér bíla og tré og skemmdi fjölda húsa, sum svo mikið að í þeim verður vart búið aftur. Margir íbúar voru fluttir á brott og fá ekki að snúa aftur fyrr en í fyrsta lagi í dag þegar athugað hefur verið hvort húsin í bænum séu íbúðarhæf. Óhætt er að segja að rignt hafi eins og hellt væri úr fötu. Rigningin mældist 60 millimetrar á aðeins tveimur klukkutímum. Samkvæmt fréttastofu Sky sjónvarpsstöðvarinnar er talið að flóðið hafi borið 50 bíla út í sjó. Þess utan skemmdust og eyðilögðust fjölmargir bílar þegar flóðið hrifsaði þá með sér. Sums staðar mátti sjá hvern bílinn ofan á öðrum þar sem flóðið hafði skilið við þá. Fjölmennt björgunarlið mætti á vettvang til að hjálpa heimamönnum. Þar var meðal annars að finna líkfundarsveit. "Við vonum að við þurfum ekki að nota hana," sagði lögregluforinginn Baxter Provan. "Þetta var hræðilegt nótt," sagði hóteleigandinn Ruth Watson við fréttamenn BBC. Hún býr í efri hluta bæjarins og hafði miklar áhyggjur af þeim hluta hans sem neðar liggur. "Þetta hlýtur að hafa verið hræðilegt þar. Hnullungar ultu niður götuna, tré og bókstaflega hvað sem var. Helmingurinn af görðum fólks voru fastir í skorningum," sagði hún.
Erlent Fréttir Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira