Bætur á milli 40 til 90 þúsund krónur Freyr Bjarnason skrifar 10. apríl 2014 07:00 Flugfarþegar bíða í röð í stiga á Keflavíkurflugvelli í miðjum verkfallsaðgerðum á þriðjudag. Fréttablaðið/GVA
Nokkrar óformlegar fyrirspurnir frá flugfarþegum hafa borist Samgöngustofu vegna verkfallsaðgerða Isavia á Keflavíkurflugvelli á þriðjudag. Formlegar kvartanir hafa ekki borist en þær er hægt að leggja fram ef farþegi telur sig ekki hafa fengið lögboðna úrlausn sinna mála hjá flugfélaginu sem hann ferðast með. „Flugfarþegar geta skotið máli sínu til okkar og við förum yfir það í framhaldinu og skerum úr um það,“ segir Þórhildur Elín Elínardóttir, upplýsingafulltrúi Samgöngustofu, aðspurð. Samræmdar alþjóðlegar reglur frá Evrópusambandinu gilda um réttindi flugfarþega hér á landi. Reglugerð um skaðabætur og aðstoð til handa farþegum sem er neitað um far og þegar flugi er aflýst eða mikil seinkun verður var innleidd á Íslandi fyrir tveimur árum. Flugmálastjórn Íslands [nú Samgöngustofa] ber ábyrgð á framkvæmd reglugerðarinnar. Allt fer það eftir aðstæðum hvort flugfarþegar eiga mögulega rétt á bótum. „Bætur eru ekki endilega borðleggjandi. Ef manneskja á pantað flug héðan og til dæmis til Mílanó með viðkomu í London fer það eftir því hvort hún hefur pantað allt á einum miða eða sjálf í gegnum netið,“ segir Þórhildur Elín. „Ef þú pantar miða alla leið með viðkomu einhvers staðar hjá sama flugfélagi ber það ábyrgð á þér en ef um mismunandi flugfélög er að ræða ber flugfélagið ekki ábyrgð á þér.“ Aðrar aðstæður sem geta komið upp eru að þeir farþegar sem eiga bókað far á þeim tíma sem verkfall stendur yfir eiga ekki rétt á bótum. Þeir farþegar sem eiga flug seinna um daginn sem seinkar vegna áhrifa verkfalls eiga aftur á móti hugsanlega rétt á bótum frá því flugfélagi sem þeir áttu bókað flug með. Þau réttindi sem farþegarnir eiga hugsanlega eru máltíðir og hressing í samræmi við lengd þeirrar tafar sem verður á flugferðum. Þeir farþegar sem neyðast til þess að bíða í eina eða fleiri nætur eftir flugfari eða ef þeir neyðast til að bíða lengur en þeir gerðu ráð fyrir eiga rétt á hótelgistingu án endurgjalds. Fari svo að flugfélagið sem farþeginn flýgur með eða Samgöngustofa samþykki bætur koma nokkrar upphæðir til greina. Bæturnar miðast við lengd flugsins og nema frá tæplega 39 þúsund krónum til rúmlega 93 þúsund króna fyrir farþegann.Ef einstaklingur missir af flugi getur hann hugsanlega fengið bætur.Upphæðirnar eru þrjár og eru miðaðar við lengd flugsins: (A) 250 evrur, eða um 39 þúsund krónur, fyrir öll flug sem eru 1.500 km eða styttri. (B) 400 evrur, eða um 62 þúsund krónur, fyrir öll flug innan EES sem eru lengri en 1.500 km og fyrir öll önnur flug á milli 1.500 og 3.500 km. (C) 600 evrur, eða um 93 þúsund krónur, fyrir öll flug sem falla ekki undir a- og b-lið.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira