Innlent

Neytendur ráða vöruúrvali ÁTVR

Vöruúrval Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins er ekki komið undir geðþóttaákvörðunum starfsmanna fyrirtækisins heldur ræðst það af vali viðskiptavina. Þær tegundir sem eru mest keyptar ná að festa sig í sessi í vöruúrvali verslunarinnar. "Hér gilda ákveðnar innkaupareglur og þær eru ekki háðar okkar mati heldur mati kaupenda," segir Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR. Upp er komið mál í Svíþjóð þar sem starfsmenn ríkisverslunarinnar, sem hefur einkaleyfi á sölu áfengis, eru sakaðir um að þiggja mútur frá birgjum sem vilja koma sínum vörum að í verslununum. Höskuldur segir að sænska ríkisverslunin notist við svokallaða smakkhópa þegar valið er á mili vörutegunda sem komi inn i verslanirnar og að ásakanir um mútuþægni hafa náð inn í þessa hópa. Aðspurður um hvort ekki sé sú hætta fyrir hendi að afgreiðslustjórar í verslunum ÁTVR noti aðstöðu sína til hygla tilteknum vörum segir Höskuldur að sú hætta sé vissulega fyrir hendi. "Við höfum hins vegar sett fram siðareglur gagnvart starfsmönnum okkar sem þeir fá afhentar við ráðningu. Kjarni þeirra er sá að þeir megi ekki gera upp á milli birgja og mæla með einni vöru umfram aðra," segir Höskuldur. "Það er aldrei hægt að útiloka að einhver óeðlileg sambönd séu milli heildsala og starfsmanna okkar, sérstaklega í þessu fámenna samfélagi og þegar haft er í huga að 560 manns koma að einhverjum störfum hjá ÁTVR. Hvað gerist þrátt fyrir okkar viðleitni er algjörlega útilokað að segja af eða á með. En eins og stendur höfum við enga ástæðu til að ætla að þarna séu svo náin viðskiptatengd sambönd að það sé eitthvað hættulegt," segir Höskuldur. Höskuldur segir að ÁTVR hafi aldrei lent í neinu sambærilegu máli og því sem upp er komið í Svíþjóð nú. "Fyrir nokkrum árum fóru starfsmenn hér í ferðalag út í Viðey í boði ákveðins birgis og úr varð mikið fjölmiðlamál. Það var persónuleg ákvörðun hvers og eins. Við höfum farið fram að slikt verði ekki endurtekið. Við erum mjög varkár í því að þiggja boð birgja og viljum að slíkt sé fyrir opnum tjöldum," segir Höskuldur. "Ég held að það fyrirkomulag sem er viðhaft af hálfu ÁTVR sé mjög gott og það eru engin vandamál af þessum toga hér á landi," segir Kári Ellertsson hjá Globus heildverslun sem flytur meðal annars inn áfengi. "Það hafa allir jöfn tækifæri til að koma sínum vörum á framfæri og ég held að enginn vilji taka þá áhættu að fara á svig við þær ströngu reglur sem ÁTVR viðhefur."
Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×