Píratar jafnvel fram víðar en í Reykjavík Jón Júlíus Karlsson skrifar 16. desember 2013 20:00
Mikil samkeppni verður um hylli borgarbúar í borgarstjórnarkosningum næsta vor. Píratar tilkynntu framboð sitt í Reykjavík um helgina og eru nú sex flokkar í framboði. Stofnað var félag Pírata í Reykjavík um helgina sem mun bjóða fram lista í vor. Píratar gætu farið fram víðar. Í könnun félagsvísindastofnunar frá því í síðasta mánuði mældust Píratar með um 10% fylgi í Reykjavík og ná inn manni. Framboðslisti flokksins verður valinn í næsta mánuði með netkosningu. Formaður nýstofnaðs félags Pírata í Reykjavík telur ástæðu til bjartsýni. „Við munum fara fram alls staðar þar sem áhugi er. Ég veit til þess að það er mikill áhugi í Hafnarfirði og svo vorum við að mælast mjög vel í Reykjanesbæ, hærra en í Reykjavík,“ segir Halldór Auðar Svansson, formaður Pírata í Reykjavík.Framboðslistar enn óljósir Besti flokkurinn vann eftirminnilegan kosningasigur árið 2010 þegar flokkurinn fékk sex menn kjörna í borgarstjórn og myndaði meirihluta með Samfylkingunni. Besti flokkurinn hefur nú runnið inn í Bjarta framtíð og mun Jón Gnarr borgarstjóri hætta afskiptum af stjórnmálum. Björn Blöndal, sem verið hefur aðstoðarmaður borgarstjóra, mun skipa efsta sæti Bjartrar framtíðar en listi flokksins var tilkynntur á föstudag. Enn er óljóst hvernig framboðslisti Sjálfstæðismanna verður skipaður en kjörnefnd mun væntanlega ljúka störfum við að stilla upp listanum á nýju ári. Halldór Halldórsson er oddviti sjálfstæðismanna eftir sigur í prófkjöri í síðasta mánuði. Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, hefur tilkynnt að hún muni draga sig í hlé og hætta í stjórnmálum. Dagur B. Eggertsson og Björk Vilhelmsdóttir ætla bæði að halda áfram samkvæmt heimildum fréttastofu en Samfylkingin fékk þrjá menn í borgarstjórn í síðustu kosningum. Prófkjör fer fram hjá Samfylkingunni í febrúar. Vinstri grænir munu velja sinn lista í febrúar. Óskar Bergsson mun leiða Framsóknarmenn í næstu kosningum en flokkurinn náði ekki inn manni árið 2010. Þá hefur fréttastofa heimildir fyrir því að Dögun íhugi framboð í Reykjavík.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira