Lýsir eftir blárri bjöllu 23. ágúst 2012 04:00 Ómar Ragnarsson „
Ég er óskaplega óminnugur á smáhluti, föt og annað slíkt,“ segir Ómar Ragnarsson þegar hann er spurður út í hver hafi verið hans bestu og verstu kaup. Hann kveðst hins vegar minntur daglega á bestu bílakaupin. „Upphaflega keypti ég bílinn á 60 þúsund krónur norður á Akureyri og er búinn að keyra hann síðan. Bílinn hefur þjónað mér óskaplega vel, enda sá ódýrasti sem hægt er að hugsa sér í rekstri. Hann er að verða fornbíll og þar að auki einn af allra minnstu bílum í umferð, Daihatsu Cuore 1988 módel.“ Seljandann segir Ómar að hafi verið sá næstbesti sem hægt sé að hugsa sér, gömul kona á Akureyri. „En best væri þá gömul kona á Fljótsdalshéraði því þar er enginn sjór nálægt.“ Bílinn segir Ómar að hafi verið svo lítið ekinn og í svo góðu standi að öll þessi ár hafi hann flogið athugasemdalaust í gegn um skoðun. „Ég sef í honum, hann er vinnustaður, gististaður og farartæki búinn að vera í þessi fimm ár. Ég held að kalla megi þetta vel heppnaða naumhyggju í bifreiðum í efsta stigi.“ Verstu kaupin segir Ómar hins vegar hafa verið Volkswagen-bjöllu sem hann keypti árið 2002 á 20 þúsund krónur. „Bíllinn leit nokkuð vel út og lofaði góðu. Ég var ekki búinn að eiga hann lengi og ætlaði að fara á honum fréttaferð austur í Hreppa, þá datt undan honum afturhjólið fyrir austan Selfoss. Ég var að flýta mér og mátti ekkert vera að þessu og ætlaði að skilja bílinn eftir þegar að kom maður og spurði hvað væri að gerast. Ég sagði honum söguna og hann kvaðst alltaf hafa dreymt um að eiga svona bíl og spurði hvort ég vildi ekki selja honum hann á staðnum.“ Það varð úr og Ómar fékk 15 þúsund krónur fyrir bílinn. „Síðan hef ég ekki séð þennan bíl en borga alltaf af honum á hverju ári,“ segir hann því eigendaskipti gengu aldrei í gegn. „Bíllinn er týndur, en samt þarf að borga af honum árlega sjö hundruð krónur. Ég er þess vegna árlega minntur á þessi verstu kaup sem ég hef gert,“ segir Ómar. „Ég lýsi hér með eftir blárri Volkswagen-bjöllu sem ég heyrði síðast af í Vestmannaeyjum einhvers staðar fyrir langa löngu.“
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Sjá meira