Atkvæðagreiðsla um stjórnarskrána hefst eftir tvo daga BBI skrifar 23. ágúst 2012 17:42 Eiríkur Bergmann sat í stjórnlagaráði.
Kjörseðillinn fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnskipunarlaga var birtur á netinu í dag. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst næstkomandi laugardag, eða eftir tvo daga. Atkvæðagreiðslan sjálf fer fram 20. október. Eiríkur Bergmann, stjórnlagaráðsmeðlimur, segir að nú standi upp á stjórnvöld að kynna frumvarpið rækilega fyrir þjóðinni og það þurfi að gera sem fyrst. „Það þarf í fyrsta lagið að dreifa frumvarpinu í heild sinni í hvert einasta hús á landinu. Svo þarf að setja upp einfalt kynningarefni þar sem helstu atriði eru dregin fram, bæði inn á vefinn og í fjölmiðla. Og loks þurfa íslenskir fjölmiðlar að rakna úr rotinu og fara að fjalla um þessi mál," segir Eiríkur. Hann bendir á að málið þyki merkilegt á heimsvísu og 3-4 erlendir fréttamenn hringi í hann á hverjum degi til að fræðast um málið. Íslenskir fjölmiðlar þegi hins vegar þunnu hljóði.Sýnishorn af kjörseðlinum.Á kjörseðlinum, sem sést hér til hliðar, koma fram 6 spurningar í krossaformi, m.a. hvort ákvæði um þjóðkirkju eigi að vera í stjórnarskrá og hvort atkvæði kjósenda hafi jafnt vægi í kosningum. Eiríkur hefur að undanförnu velt stjórnlagagerð mikið fyrir sér og bauð fréttamanni upp á handahófskennda fróðleiksmola af því sviði. „Það eru tæpast til dæmi þess að stjórnlagaþing hafi komist að einróma niðurstöðu eins og gerðist hjá okkur," segir hann. Skiptar skoðanir hafi verið á þekktum stjórnlagaþingum í gegnum tíðina. Eiríkur bendir einnig á að íslenska stjórnlagaráðið hafi fengið jafnlangan tíma til að semja frumvarp til stjórnlaga og þeir sem sömdu bandarísku stjórnarskrána, eða fjóra mánuði. „Og sögusagnir segja að glasaglaumur hafi verið mikill fyrstu tvo mánuðina hjá þeim," segir hann. Loks bendir hann á að stjórnarskrár hafi gegnum tíðina yfirleitt verið skrifaðar í kjölfar einhvers konar krísu. „Það eru aðeins tvö tilvik þekkt um að stjórnarskrá hafi ekki verið skrifuð á ólgutímum," segir hann.Hér má sjá allan kjörseðilinn.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Sjá meira