Ógjörningur er að meta tjónið 13. október 2005 15:02
Um sex hundruð íbúar Kleppsvegar og nágrennis fengu að halda heim um miðjan dag í gær eftir að hafa þurft að yfirgefa híbýli sín í hasti undir miðnætti í fyrrakvöld. Enn er ógjörningur að meta tjónið sem hlaust af en ljóst að það er umtalsvert. Skemma Hringrásar varð eldinum að bráð og allt sem í henni var auk þess sem talsverð verðmæti voru í dekkjahaugnum sem brann til kaldra kola. Starfsemi lá niðri í mörgum nærliggjandi fyrirtækjum í gær og eigur sumra þeirra eyðilögðust vegna reyks og sóts. Matvælafyrirtæki í grenndinni þurfti að farga allri framleiðslu sinni. Ónefndar eru þær skemmdir sem urðu á heimilum. Á fjórða hundrað tók þátt í samhæfðum aðgerðum björgunaraðila og hafa ekki fleiri komið að slíkum verkum fyrr. Um 80 slökkviliðsmenn stóðu í ströngu um langa hríð, yfir 30 lögreglumenn komu að verkinu, 90 björgunarsveitarmenn og 50 liðsmenn Rauða krossins auk fjölda annarra, til dæmis bílstjóra og þungavélastjóra. Mönnum ber saman um að allar aðgerðir hafi tekist vel og gott samstarf ríkt. Hringrás hefur komið töluvert við sögu á liðnum árum vegna mengunar í jarðvegi. Árið 1989 greindist eiturefnið PCB í jarðvegi á athafnasvæði þess en umhverfisráðuneytið gaf út fyrsta starfsleyfi fyrirtækisins 1991. Tveimur árum síðar var fullyrt að PCB-mengun á lóð Hringrásar væri eitt mesta umhverfisvandamál sem komið hefði upp á Íslandi. Þá vildi Katrín Fjeldsted, þáverandi formaður heilbrigðisnefndar Reykjavíkur, að fyrirtækið yrði flutt af núverandi athafnasvæði. Heilbrigðiseftirlit borgarinnar gaf hins vegar út leyfi í september 1999 til 5 ára og rann það út í haust. Þá hófst vinna við endurnýjun leyfisins. Árið 2001 sekkjaði fyrirtækið PCB-menguðum jarðvegi sem komið var fyrir í landfyllingu í Sundahöfn og á lóð fyrirtækisins.
Fréttir Innlent Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira