Stefnir allt í að forseti Brasilíu verði ákærður Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 29. mars 2016 22:30 Stærsti flokkurinn á brasilíska þinginu hefur yfirgefið stjórn Dilmu Rouseff, forseta Brasilíu. Vísir/Getty
Vonir Dilma Rousseff forseti Brasilíu um að sitja út kjörtímabil sitt eru að litlu orðnar eftir að stærsti flokkurinn á brasilíska þinginu ákvað í dag að yfirgefa ríkisstjórn hennar. Líklegt þykir að hún verði ákærð vegna spillingarmáls sem hún er flækt í. Talið er líklegt að ákvörðun Brasilísku lýðræðishreyfingarinnar muni gera það að verkum að smærri flokkar á þingi muni einnig láta af stuðningi sínum við Roussef sem stendur frammi fyrir atkvæðagreiðslu í neðri deild brasilíska þingsins um að ákæra hana fyrir spillingarmál sem hún teygir anga sína víða um brasilískt samfélag.Sjá einnig: Einn dáðasti stjórnmálamaður Brasilíu flæktur í umfangsmikið spillingarmálEftir brotthvarf Brasilísku lýðræðishreyfingarinnar leiðir hún nú brothætta minnihlutastjórn. Embættismenn innan stjórnar forsetans telja að enn megi bjarga lífi ríkisstjórnarinnar en það er þó talið ólíklegt. Andstæðingar forsetans hafa nú meirihluta fyrir því að samþykkja ákærur á hendur Rousseff. Spillingarmálið sem lögreglan grunar Roussaef og Luiz Inacio Lula da Silva, forvera hennar í starfi, um að tengjast nær víða um brasilískt samfélag. Tugir viðskiptajöfra og stjórnmálamanna, bæði úr stjórn og stjórnarandstöðu, eru grunaðir um að spillingu en meðal annars er talið að pólitíkusum hafi verið mútað af mönnum í viðskiptalífinu sem vildu ná hagstæðum samningum við ríkisrekna olíurisann Petrobras. Sjá einnig: Luka ákærður fyrir fjárdráttRousseff segir að engin lagalegur grundvöllur sé fyrir ákæru á hendur sér og að allar tilraunir til þess væru ekkert annað valdarán af hálfu pólitískra andstæðinga sinna. Verði Roussef ákærð verður henni vikið úr störfum í 180 daga á meðan málið er rekið fyrir efri deild þingsins. Eftir það verður tekin ákvörðun hvort reka eigi Roussef úr embætti forseta.
Tengdar fréttir Lula hyggst hreinsa sig af ásökunum um spillingu „Ég óttast ekkert,“ segir forsetinn fyrrverandi. 4. mars 2016 19:30 Einn dáðasti stjórnmálamaður Brasilíu flæktur í umfangsmikið spillingarmál Dilma Rousseff, forseti Brasilíu, heimsótti í dag Luiz Inacio Lula da Silva, forvera sinn í embætti, og sýndi þannig stuðning sinn í verki en Lula var handtekinn og yfirheyrður í gær vegna gruns um að hann tengist umfangsmiklu spillingarmáli olíufyrirtækisins Petrobras. 5. mars 2016 22:33 Dómari setur lögbann á skipun Lula Dilma Rousseff Brasilíuforseti skipaði í gær forvera sinn, Luiz Inacio Lula da Silva, í embætti starfsmannastjóra forsetaembættisins. 17. mars 2016 15:49 Lula skipaður starfsmannastjóri Rousseff forseta Ákvörðun Dilmu Rousseff þýðir að erfiðara verður fyrir saksóknara í landinu að ákæra Lula 17. mars 2016 08:48 Saksóknarar fara fram á að Lula verði handtekinn Saksóknarar í Brasilíu hafa krafist þess að fyrrverandi forseti landsins verði handtekinn vegna rannsóknar á peningaþvætti sem að honum beinist. 10. mars 2016 23:31 Mest lesið Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Sundlaugargestur handtekinn Innlent Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Innlent Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Innlent Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Innlent „Það bjó enginn í húsinu“ Innlent „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Innlent Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Innlent Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Innlent Fleiri fréttir Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sjá meira
Lula hyggst hreinsa sig af ásökunum um spillingu „Ég óttast ekkert,“ segir forsetinn fyrrverandi. 4. mars 2016 19:30
Einn dáðasti stjórnmálamaður Brasilíu flæktur í umfangsmikið spillingarmál Dilma Rousseff, forseti Brasilíu, heimsótti í dag Luiz Inacio Lula da Silva, forvera sinn í embætti, og sýndi þannig stuðning sinn í verki en Lula var handtekinn og yfirheyrður í gær vegna gruns um að hann tengist umfangsmiklu spillingarmáli olíufyrirtækisins Petrobras. 5. mars 2016 22:33
Dómari setur lögbann á skipun Lula Dilma Rousseff Brasilíuforseti skipaði í gær forvera sinn, Luiz Inacio Lula da Silva, í embætti starfsmannastjóra forsetaembættisins. 17. mars 2016 15:49
Lula skipaður starfsmannastjóri Rousseff forseta Ákvörðun Dilmu Rousseff þýðir að erfiðara verður fyrir saksóknara í landinu að ákæra Lula 17. mars 2016 08:48
Saksóknarar fara fram á að Lula verði handtekinn Saksóknarar í Brasilíu hafa krafist þess að fyrrverandi forseti landsins verði handtekinn vegna rannsóknar á peningaþvætti sem að honum beinist. 10. mars 2016 23:31