Íslenski boltinn

Ásgeir Börkur hugsanlega á leiðinni heim

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það myndi styrkja Fylki mikð að fá Ásgeir Börk aftur heim.
Það myndi styrkja Fylki mikð að fá Ásgeir Börk aftur heim. Mynd/Daníel
Fylkismenn eru í erfiðum málum í Pepsi-deild karla og liðið horfir fram á að missa fjóra leikmenn í næsta mánuði.

Andrés Már Jóhannesson er í láni hjá félaginu til 15. júlí en Fylkir á möguleika á því að lengja lánið um mánuð. Þeir Davíð Þór Ásbjörnsson, Oddur Ingi Guðmundsson og Andri Þór Jónsson eru svo allir á leið til útlanda í nám í ágúst.

Svo herma heimildir Fréttablaðsins að staða þeirra Tryggva Guðmundssonar og Heiðars Geirs Júlíussonar sé ekki sterk hjá félaginu og þeir gætu verið á leið út.

Á móti kemur að Ásgeir Börkur Ásgeirsson gæti verið á leið heim en hann er í láni hjá Sarpsborg í Noregi en sá lánstími rennur út 15. júlí.

„Það er bara tvennt í stöðunni. Annaðhvort kaupa þeir hann eða hann kemur heim. Auðvitað viljum við helst fá hann heim, okkur veitir ekki af. Við skiljum samt að hann vill eðlilega vera áfram í atvinnumennsku,“ sagði Ásgeir Ásgeirsson, formaður knattspyrnudeildar Fylkis.

Ásgeir sagði enn fremur að Fylkismenn væru að skoða að fá sterkan erlendan leikmann til þess að bregðast við komandi forföllum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×