Viðskipti erlent

Tinder fær heljarinnar uppfærslu í sumar

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Einhleypingar á Tinder munu þurfa að hafa sig til áður en þeir opna forritið í sumar.
Einhleypingar á Tinder munu þurfa að hafa sig til áður en þeir opna forritið í sumar. vísir/getty

Móðurfélag stefnumótaforritsins Tinder greindi frá því í ársfjórðungsuppgjöri sínu í gær að til standi að innleiða eiginleika í forritið á næstu mánuðum sem myndi gera notendum kleift að eiga myndsímtöl sín á milli. Í uppgjöri Match Group er vísað til áhrifa samkomubanns á stefnumótahegðun fólks, þegar það hefur ekki getað farið út og hitt hvort annað hafi það reitt sig í auknum mæli á fjarfundabúnað og myndsímtöl. Þannig hafi 70 prósent notenda stefnumótaforritsins Hinge sagst vera opið fyrir því að ræða við álitlega einhleypinga með þessum hætti.

Notendur Tinder séu þar að auki farnir að senda fleiri skilaboð og samtöl þeirra séu sífellt að lengjast. Þannig hafi notendur undir þrítugu sent 35 prósent fleiri skilaboð í apríl en í síðustu viku febrúar, sem skýrist að miklu leyti af samkomubanni og meðfylgjandi einmanaleika. Aukninguna vill Tinder ekki síst rekja til kvenna og segja aðstandendur forritsins þessa breyttu hegðun þeirra „gríðarlega jákvæða“ fyrir „vistkerfi“ smáforritsins.

Í uppgjörinu segir einnig að til standi að ýta myndsímtalaeiginleikanum úr vör í lok annars árfjórðungs, sem yrði þá í sumar. Ekki er þó farið nánar út í það hvernig það muni koma til með að líta út, aðeins að þau hafi merkt mikla eftirspurn eftir slíkum eiginleika meðal notenda Tinder. Þá sjái Tinder fram á að að kynna fleiri nýjungar til sögunnar á árinu sem ætlað er að fjölga tekjumöguleikum forritsins, án þess að útskýra það frekar.

Tæknivefurinn Verge hefur ákveðnar efasemdir um myndsímtölin, sem vefurinn segir eina stærstu uppfærslu í sögu Tinder. Myndsímtöl séu kjörin vettvangur fyrir hvers kyns áreitni sem erfitt sé að koma í veg fyrir, að minnsta kosti erfiðara en að loka á óæskileg skilaboð. Því voni Verge að forritarar Tinder leggi allt kapp á að útbúa kerfi til að tilkynna og koma í veg fyrir áreitni í myndsímtölum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×