Júlíspá Siggu Kling - Steingeitin: Styrkur þinn er að eflast dag frá degi Sigga Kling skrifar 5. júlí 2019 09:00
Elsku Steingeitin mín, þú ert með óútskýranlega færni til að hreyfa heiminn til, bara ef þú ákveður það, því þú hefur kraft á við Súperman á þessu ári. Þú ert að byggja svo sterkar undirstöður að framtíð þinni, svolítið eins og að byggja grunn að framtíðarhúsi, þér finnst það erfitt því þú sérð ekki hvað húsið verður mikilfenglegt og þú sérð jafnvel ekki núna hvað framtíð þín er mikilfengleg, en þetta tímabil, lætur þig leita og finna lausnir á að hafa allt fullkomið svo þú getur verið stolt af því sem þú gerir. Af auðveldu lífi verður engin útkoma, svo þó þér finnist þú hafir storminn í fangið þá ertu eins og sannur Íslendingur og trúir að góða veðrið komi þrátt fyrir erfiðar spár. Þú leggur mikið á þig og það er akkúrat það sem mun gefa þér uppskeru, svona eins og þú sért að ljúka prófum og þurfir að vaka dag og nótt til að læra fyrir þau, en einkunnin þín verður 10 sem mun svo sannarlega gera líf þitt léttara. Ef þú ert í peningaþröng þá opnast fyrir þér möguleikar til að bjarga öllu og meira til. Styrkur þinn er að eflast dag frá degi og ef þú hefur átt við einhver veikindi að etja í huga eða líkama, þá er eins og allar frumurnar þínar verði sterkari og endurnýi sig til að lækna veikindi eða hjartasár. Þú verður stolt af afkomendum þínum eða fólki þér tengdu og líka sjálfri þér og þú hefur smitandi áhrif á aðra, svo það er afar mikilvægt að hafa það að leiðarljósi að vera hress, kát og jákvæð þó þér finnist þér alls ekki líða þannig. Með því að hafa einbeittan vilja að framkvæma þetta verður þessi ásetningur að persónuleika þínum, þú þarft að læra að vera í mínútunni sem þú lifir og hrinda öllu öðru frá þér nema augnablikinu því það er það eina sem þú hefur. Knús og kveðja, þín Sigga KlingSvava, Dorrit, Michelle, Edda, Aron og Davíð.Vísir/getty/fblSteingeit 22. desember - 19. janúarSvava Johansen í Sautján, 7. janúar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, 31. desember Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins 17. janúar Jón Gnarr, listamaður, 2. janúar Tómas Guðbjartsson læknahetja, 11. janúar Dorrit Moussaieff forsetafrú, 12. janúar Stefán Jakobsson, tónlistarmaður, 14. janúar Þuríður Blær Jóhannsdóttir, leikkona og Reykjavíkurdóttir, 16. janúar Jóhann K. Jóhannsson fréttamaður. 9. janúar Guðrún Ýr Eyfjörð, tónlistarkonan GDRN, 8. janúar Edda Andrésdóttir, fréttaþulur, 28. desember Michelle Obama, forsetafrú, 17. janúar Aron Már Ólafsson, Aron Mola, 12. janúar
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Lífið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Bíó og sjónvarp Líkindi með Grand Theft Auto og Red Dead Redemption Leikjavísir Fleiri fréttir Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Sjá meira