Helena stórkostleg í endurkomunni á Ásvelli Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 16. janúar 2019 20:58 Helena Sverrisdóttir er uppalin hjá Haukum en fór í Val þegar hún kom heim úr atvinnumennsku fyrr í vetur Vísir/Bára
Valskonur völtuðu yfir Hauka í endurkomu Helenu Sverrisdóttur á Ásvelli. Skallagrímur hafði betur gegn Blikum í mikilvægum leik í botnbaráttunni í Domino's deild kvenna. Valur hefur verið á mikilli siglingu og vann liðið sinn sjötta leik í röð í kvöld þegar Valskonur unnu 83-60 sigur á Haukum í Schenkerhöllinni. Helena fór á kostum gegn uppeldisfélagi sínu og skoraði 30 stig, tók 11 fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Heather Butler bætti við 16 stigum fyrir Val í öruggum sigri. Eftir nokkuð jafnan fyrsta leikhluta vann Valur annan leikhlutann með átta stigum og var staðan 25-36 í hálfleik. Haukar náðu að halda í við Val í þriðja leikhluta en gestirnir keyrðu yfir Haukana í fjórða leikhluta. Í Borgarnesi mættust Skallagrímur og Blikar í mikilvægum fallbaráttuslag. Blikar voru fyrir leikinn á botninum með tvö stig, Skallagrímur með átta stig líkt og Haukar. Heimakonur í Skallagrími unnu fyrri hálfleikinn örugglega og var staðan 50-33 í hálfleik. Skallagrímur jók forystu sína í þriðja leikhluta og fyrir síðasta fjórðunginn var staðan orðin 74-48 og ljóst að leikurinn var úti. Blikar unnu síðasta fjórðunginn og náðu að laga stöðuna en þær komust þó ekki nær en 84-74. Breiðablik fer að renna út á tíma að tryggja sér áframhaldandi veru í deild þeirra bestu, liði hefur aðeins unnið einn leik af fimmtán á tímabilinu.
Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti Frakkar vilja Infantino burt Fótbolti Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Handbolti Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Handbolti Fleiri fréttir Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins Sjá meira