Ákærður fyrir kynferðislega áreitni gegn tveimur samstarfskonum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 13. desember 2019 06:30 Héraðssaksóknari fer með málið. vísir/vilhelm
Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir kynferðislega áreitni gagnvart tveimur samstarfskonum sínum. Brotin sem maðurinn er ákærður fyrir áttu sér stað á árunum 2014 og 2015 og varða þau við 199. grein almennra hegningarlaga sem fjallar um kynferðislega áreitni. Maðurinn vann með konunum á veitingastað í Reykjavík. Gagnvart annarri þeirra er hann ákærður fyrir að hafa í nokkur skipti tekið utanklæða um rass hennar og kreist hann, í eitt skipti klipið hana í annað brjóstið utanklæða og í nokkur skipti kysst hana á munninn. Þá er hann einnig ákærður fyrir að hafa í nokkur skipti viðhaft kynferðisleg ummæli um útlit konunnar við hana. Konan fer fram á að maðurinn greiði henni eina milljón í miskabætur. Gagnvart hinni konunni er maðurinn ákærður fyrir að hafa í nokkur skipti nuddað kynfærum sínum, utanklæða, við rass hennar. Þá er honum einnig gefið að sök að hafa í nokkur skipti tekið utan um rass hennar og brjóst og kreist og í nokkur skipti kysst hana á munninn. Að auki er maðurinn ákærður fyrir að hafa haft uppi kynferðisleg ummæli við konuna um útlit hennar og hvað hann myndi vilja gera með henni. Konan fer fram á að hann greiði henni tvær milljónir króna í miskabætur.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Reykjavík Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Fleiri fréttir Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Sjá meira