Enski boltinn

Agu­ero frá í nokkrar vikur og missir af granna­slagnum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Aguero fer af velli.
Aguero fer af velli. vísir/getty
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, sagði á blaðamannafundi í dag að framherji liðsins, Sergio Aguero, verði frá í nokkrar vikur.

Aguero meiddist í 2-1 sigri City á Chelsea á laugardaginn en Argentínumaðurinn fór af velli á 76. mínútu er hann meiddist.

Meiðslin eru á sin en nákvæm dagsetning hvenær Aguero snýr til baka er ekki klár. Hann verður frá í nokkrar vikur að sögn Guardiola.







Nokkrir stórir leikir eru framundan hjá City sem er að berjast á toppi deildarinnar en liðið er níu stigum á eftir toppliði Liverpool.

Hann mun þar af leiðandi missa af grannaslagnum gegn Manchester United 7. desember.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×