Innlent

Nefbrotin á Októberfest

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Frá Októberfest í fyrra.
Frá Októberfest í fyrra. Mynd/Kristinn Gauti Gunnarsson
Lögreglu sem var við eftirlit á tónleikasvæði Októberfest við Háskóla Íslands í Vatnsmýrinni var á miðnætti tilkynnt um að ung kona hefði verið kýld í andlitið og væri líklega nefbrotin.

Konan var farin á slysadeild þegar tilkynning barst. Með aðstoð öryggisvarða tókst að finna árásarmanninn.

Um klukkan hálf eitt var tilkynnt um slagsmál á hátíðinni. Slagsmálin voru að mestu yfirstaðin þegar lögregla kom á staðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×