Gefur tekjur sínar af sýningunni Kristinn Haukur Guðnason skrifar 30. ágúst 2019 08:45 Gísli Örn Garðarsson fer með hlutverk í Ég hleyp. Fréttablaðið/Ernir
Leikarinn Gísli Örn Garðarsson ætlar að gefa allar tekjur sínar af leiksýningunni Ég hleyp, sem sýnd verður næsta vor í Borgarleikhúsinu, til góðgerðarmála. Ég hleyp er danskt leikrit byggt á sannri sögu um barnsmissi. Gísli Örn hafði sjálfur frumkvæði að uppsetningunni ásamt Kristínu Eysteinsdóttur leikhússtjóra. „Þetta er saga um danskan blaðamann sem missir dóttur sína. Sex tímum eftir að hún er látin var hann farinn út að hlaupa, eitthvað sem hann hafði aldrei gert áður,“ segir Gísli Örn. „Þetta verður áskorun, bæði af því að viðfangsefnið er viðkvæmt og af því að þetta er líkamlega erfitt eins og við Baldvin Z leikstjóri ætlum að vinna þetta.“ Allar tekjur Gísla Arnar af leikritinu munu renna til samtakanna Nýrrar dögunar, Bergsins, Ljónshjarta og Dropans. „Mér fannst ekki rétt að þiggja laun við að leika þetta efni og fara í þetta ferðalag, svo við Kristín fundum útfærslu á þessu þar sem niðurstaðan er þessi. Það sem hefði komið í minn hlut mun renna til þessara samtaka,“ segir hann. Gísli Örn mun hlaupa á bilinu 10 til 12 kílómetra á hverri sýningu og því er ekki seinna vænna að hefja æfingar. „Ég tók 10 kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu og er að bíða eftir að hnén jafni sig svo ég geti byrjað aftur að æfa á skynsamlegum hraða.“
Birtist í Fréttablaðinu Leikhús Menning Mest lesið Frægustu mágar landsins Lífið Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð Lífið Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Lífið Ocasio-Cortez á lausu Lífið Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Lífið OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Lífið Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Lífið Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Lífið Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Lífið Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Lífið Fleiri fréttir Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira