Fótbolti

Jafntefli í fyrsta leik Arnars og markalaust í Íslendingaslag í Svíþjóð

Anton Ingi Leifsson skrifar
Arnar Grétarsson er hann stýrði Breiðablik.
Arnar Grétarsson er hann stýrði Breiðablik. VÍSIR/ERNIR
Arnar Grétarsson gerði 1-1 jafntefli með Roeselare er hann stýrði félaginu í fyrsta sinn í belgísku B-deildinni í dag.

Roeeselare tapaði fyrsta leiknum en Arnar horfði á þann leik úr stúkunni enda nýtekinn við liðinu. Í dag var hans fyrsti leikur og niðurstaðan jafntefli.





Í sænsku úrvalsdeildinni gerðu Linköping og Kristianstad markalaust jafntefli í Íslendingaslag. Kristianstad í 6. sætinu en Linköping sæti ofar með þremur stigum meira.

Anna Rakel Pétursdóttir kom inn á sem varamaður á 20. mínútu hjá Linköping en Sif Atladóttir spilaði allan leikinn fyrir Kristianstad. Elísabet Gunnarsdóttir er þjálfari liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×