Erlent

Landamæraverðir grínuðust með dauða förufólks og svívirtu þingkonu

Kjartan Kjartansson skrifar
Alexandria Ocasio-Cortez var ein þeirra þingmanna sem heimsóttu landamærastöð í Clint í Texas í gær.
Alexandria Ocasio-Cortez var ein þeirra þingmanna sem heimsóttu landamærastöð í Clint í Texas í gær. AP/Briana Sanchez/El Paso Times
Rannsókn stendur nú yfir á leynilegum Facebook-hópi þar sem bandarískir landamæraverðir deildu rasísku efni um förufólk og hvöttu til ofbeldis gegn þingkonu af rómönskum ættum. Sumir þeirra hentu gaman að dauða förufólks á landamærunum að Mexíkó.

Um 9.500 manns voru í Facebook-hópnum, bæði núverandi og fyrrverandi landamæraverðir. Hann nefnist „Ég er 10-15“ [e. I‘m 10-15] en það er vísun í kóða landamæraeftirlitsins um innflytjendur í haldi.

Forstjóri bandaríska landamæraeftirlitsins segir færslur sem þar birtust og vefsíðan ProPublica komst yfir séu algerlega óviðeigandi, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Starfsmenn sem hafi brotið gegn reglum stofnunarinnar verði dregnir til ábyrgðar.

Í hópnum gerðu sumir landamæravarðanna lítið úr dauða sextán ára gamals innflytjanda frá Gvatemala sem lést í haldi í landamærastöð í Weslaco í Texas í maí. Sumir gerðu grín að dauða unglingsins.

Þá fór félagar í hópnum ófögrum orðum um tvær þingkonur Demókrataflokksins sem heimsóttu landamærastöð í Clint í Texas í gær þar sem hundruð barna var haldið við illan aðbúnað. Þær Alexandria Ocasio-Cortez og Veronica Escobar eru báðar af rómansk-amerískum ættum.

Þannig hvatti einn landamæravörður til þess að félagar hans hentu „burrito í þessar tíkur“ þegar þingkonurnar heimsæktu landamærastöðina. Annar, sem ProPublica segir virðist vera yfirmann innan landamæraeftirlitsins, skrifaði „Fari þessar hórur fjandans til“ við frétt um heimsókn þingkvennanna.

Ocasio-Cortez varð fyrir sérstöku níði í Facebook-hópnum. Þar var meðal annars deilt myndum sem höfðu verið unnar af henni til að láta líta út fyrir að hún væri að veita innflytjanda munnmök í landamærastöð. Á annarri mynd var Donald Trump Bandaríkjaforseti látinn líta út fyrir að þvinga þingkonuna til að hafa við sig munnmök.

„Það er rétt, tíkur. Fjöldinn hefur talað og í dag vann lýðræðið,“ skrifaði landamæravörðurinn sem birti myndina af Trump og Ocasio-Cortez.

Veronica Escobar var önnur þingkvennanna sem landamæraverðir virðast hafa sérstaka andúð á. Andstæðingar förufólks gerðu hróp að þingmönnum þegar þeir ræddu við fréttamenn eftir heimsókn sína í gær.AP/Briana Sanchez/El Paso Times

Segir landamæraverði hafa sagt konum að drekka úr klósettinu

Ocasio-Cortez og fleiri þingmenn hafa verið gagnrýnir á framferði bandarískra landamæravarða, ekki síst eftir fréttir bárust af því að börn í haldi þeirra hafi hvorki fengið sápu né tannbursta, nægilega mikið að borða og þau látin sofa á gólfinu, í sumum tilfellum vikum saman.

Þá fundu bandarísk yfirvöld nýlega fjölda hatursfullra skilaboða sem landamæraverðir sendu sín á milli í síma eins þeirra sem var ákærður fyrir að keyra niður innflytjanda frá Gvatemala á pallbíl sínum í fyrra.

Í skilaboðunum lýstu landamæraverðirnir förufólki meðal annars sem „villtum skíthælum“ og „óæðri manneskjum“. Þá varð þeim tíðrætt um að brenna förufólkið.

Eftir heimsókn sína í landamærastöðina í Texas sagði Ocasio-Cortez að það væru ekki aðeins börn sem byggju við illan aðbúnað heldur förufólkið almennt. Hún hefði orðið vitni að því að verðir segðu konum í haldi að drekka úr klósettunum því ekkert annað rennandi vatn var í klefum þeirra.

„Ég skil hvers vegna CBP-starfsmennirnir voru svona líkamlega og kynferðislega ógnandi við mig,“ tísti þingkonan eftir heimsóknina og eftir að ljóstrað var upp um Facebook-færslu landamæravarðanna.


Tengdar fréttir

Dauði förufólks á landamærunum engin nýmæli

Íslenskur dósent segir að eftir að byrjað var að reisa múra á landamærum Mexíkó og Bandaríkjanna á 10. áratugnum hafi förufólk og hælisleitendur hrakist á hættulegri slóðir til að komast yfir þau til norðurs.

Ameríski draumurinn sem drukknaði í Río Grande

Mynd af feðginum frá El Salvador sem drukknuðu við að reyna að komast til Bandaríkjanna hefur vakið athygli á hættunni sem fólk frá Rómönsku Ameríku leggur sig í við leit að betra lífi.

Demókratar samþykktu landamærafrumvarp með semingi

Fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefur samþykkt frumvarp sem mun verða til þess að 4, 6 milljörðum dala verður veitt til að takast á við þann mannfjölda sem freistar þess að komast yfir landamærin frá Mexíkó til Bandaríkjanna.

Forstjóri tolla- og landamæraeftirlits Bandaríkjanna segir af sér eftir gagnrýni vegna aðbúnaðar flóttabarna

John Sanders, starfandi forstjóri tolla og landamæraeftirlits Bandaríkjanna hefur ákveðið að segja stöðu sinni lausri í kjölfar fréttaflutnings vestra um aðbúnað barna innflytjenda sem eru í haldi stofnunarinnar í Texas. Fréttir höfðu borist af því að sum börnin hafi verið látin dúsa í stöðinni í fleiri vikur og við illan aðbúnað. Aðstæður í innflytjendaskýlum sætir harðri gagnrýni réttindasamtaka og stjórnarandstæðinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×