Fótbolti

Sjáðu frábært mark Arons: „Tvö mörk, stoðsending og þrjú stig er frábært“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Aron fagnar marki í dag.
Aron fagnar marki í dag. mynd/heimasíða start
Aron Sigurðarson hefur farið á kostum með Start í norsku B-deildinni það sem af er tímabili. Hann skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í 3-1 sigri Start á Tromsdalen í dag.

Aron hefur skorað átta mörk fyrir Start á leiktíðinni en sigurinn í dag var mikilvægur fyrir Start sem hafði ekki verið á góðu skriði.

„Það mikilvægasta var að vinna. Ég er bara að reyna að hjálpa liðinu eins vel og ég get. Tvö mörk, stoðsending og þrjú stig. Þetta er frábært,“ sagði Aron í samtali við heimasíðu Start í leikslok.

„Það var mikilvægt að hleypa þeim ekki inn í leikinn. Við skoruðum fljótt aftur og komust í 2-1,“ en Aron segir að sigurinn hafi verið mikilvægur:

„Mér fannst við stýra leiknum varnarlega. Þeir sköpuðu ekki mikið og við fengum nóg af færi en nýttum þau ekki. Við stóðum saman og börðumst.“

Start hafði ekki náð í sigur í síðustu tveimur leikjum en þessi umferð var sú síðasta fyrir sumarfrí. Aron segir að sigurinn hafi því verið enn mikilvægari.

„Það var mjög mikilvægt að vinna þennan leik. Við gerðum ekki vel í síðustu tveimur leikjum svo það var léttir að vinna aftur. Núna getum við farið léttir í sumarfrí,“ sagði Aron.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×