Skoðun

 Svik og prettir hf.

Hilmar Harðarson skrifar
Það hefur verið átakanlega sorglegt að fylgjast með fréttaflutningi fjölmiðla af því hvernig einstaka bílaleigur hafa starfrækt skipulagðar svikamyllur gagnvart íslenskum neytendum með því að skrúfa niður kílómetrafjölda í bílaleigubílum sem síðan hafa verið seldir landsmönnum. Þessi hreinræktaða glæpastarfsemi, sem hún vissulega er, hefur valdið gríðarlegum skaða á bílasölumarkaði, sáð fræjum vantrausts og tortryggni, efinn er í hugum þeirra sem ætla að kaupa sér notaðan bíl og fólk veit einfaldlega ekki hverjum það getur treyst. Fagmennska hefur vikið fyrir fúski og við vitum öll hvað gerist þegar fúsk kemur við sögu. Vissulega, og það skal undirstrikað, standa langflestar bílaleigur sig algjörlega hvað þetta varðar og koma fram af heiðarleika og hreinskilni, en minnihlutinn kemur með framferði sínu óorði á alla greinina. Það er ennfremur óþolandi staða að bílaleigubílar, sem eru mest eknu bílar landsins, og við mætum á þjóðvegunum á hverjum degi, séu aðeins skoðaðir á þriggja ára fresti. Auðvitað eiga þeir, rétt eins og atvinnubílar, að vera skoðaðir á hverju ári. Heilbrigð skynsemi segir okkur það! Allt annað er fúsk og því óásættanlegt!

Því miður er það þannig að við vinnustaðaeftirlit okkar undanfarin ár hefur komið í ljós að alltof margir ófaglærðir aðilar eru að störfum á þessum stöðum og undir slíkum kringumstæðum getur skapast andrúmsloft þar sem undirferli fær að blómstra. Það er með öllu óþolandi að þurfa að fylgjast með því hvernig örfáir svartir sauðir skemma fyrir þeim bílaleigum sem eru í heiðarlegri starfsemi og enn á ný kemur til þess að við þurfum að benda á þá brotalöm sem fylgir svartri atvinnustarfsemi, vinnustöðum þar sem kennitöluflakk hefur viðgengist og þar sem ófaglærðir einir eru að störfum. Margoft höfum við bent á þetta en við trúum því að dropinn holi steininn og opinberir aðilar muni á endanum meðtaka skilaboðin.

Þar sem faglærðir iðnaðarmenn eru að störfum eru vinnubrögðin í lagi og neytendur geta treyst því að viðhald sé í lagi og upplýsingar séu réttar. Fagmenn tryggja nefnilega að rétt sé að staðið. Við sættum okkur við fagmennsku og heiðarleika og vönduð vinnubrögð, við sættum okkur aldrei við fúsk í fyrirtækjum sem gætu eins heitið Svik og prettir hf.

Höfundur er formaður Samiðnar og formaður Félags iðn- og tæknigreina.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×