Skoðun

Breyta lífum til hins betra eða dvelja á­fram í hýðum síns vetra?

Tómas Ellert Tómasson skrifar

- Skildu heiminn eftir á betri stað af þeirri einni ástæðu að þú hefur verið staddur í honum-

Brynjar Karl Sigurðsson hefur verið áberandi í umræðunni að undanförnu í aðdraganda Íþróttaþings ÍSÍ sem fram fer um helgina vegna framboðs síns til formanns sambandsins, loksins þegar að hann fékk verðskuldaða athygli fjölmiðla eftir að hafa vælt og skælt á samfélagsmiðlum yfir áhugaleysi þeirra á framboði sínu, eins og hann orðaði það sjálfur.

Brynjar Karl er vel þekktur í íslenskum körfubolta, bæði fyrir þann árangur sem hann hefur náð með sína leikmenn innan sem utan vallar og einnig fyrir það að hafa vakið upp skaplausa öfund hjá hirð af fólki sem skortir ástríðu og sameinandi hugsjón, svo vitnað sé í tilvistarspekilega sálarfræði. En samkvæmt þeim sálarfræðum að þá orsakar þessi skaplausa öfund, að sérkenni og yfirburðir manna hljóta ekki viðurkenningu. Og að yfirburðar einstaklingnum er þá hafnað í þágu heildarinnar. Með höfnun yfirburðar einstaklingsins hefur heildin þá verið jöfnuð út og enn gildir að engum er leyft að skara fram úr. Hver og einn sem þar er staddur getur þá áfram borið sig saman við aðra sem eru á þeim sama stað, að skorta allt sjálfstæði, frumkvæði og andlega hugsun.

Brynjar Karl hvorki býr né starfar á þeim stað sem að framan greinir, en það gera aðrir sem hafa látið sig mikið í frammi við að illmælga Brynjar og hans þjálfunaraðferðir á opinberum vettvangi. Hann starfar hins vegar á þeim stað þar sem það er haft að leiðarljósi að hafa jákvæð og uppbyggileg áhrif á líf ungmenna í leik og námi svo úr verði heilsteyptir einstaklingar. Heilsteyptir einstaklingar sem þora, sem þora að vera til, sem þora að taka pláss og sem þora að takast á við lífið.

Brynjar Karl hefur margsýnt það með verkum sínum að hann iðkar trúna sem hann boðar, jafnvel þó það kosti hann persónulegar fórnir. Því vil ég skora á þingfulltrúa á Íþróttaþingi ÍSÍ, að dvelja ei áfram í hýðum síns vetra og velja mann til forystu sem breytir lífum til hins betra.

Höfundur er byggingarverkfræðingur og fyrrverandi bæjarfulltrúi í Svf. Árborg.




Skoðun

Sjá meira


×