Innlent

Heyrði kallað „Mayday“ í annað sinn á þrjá­tíu ára ferli

Kristín Ýr Gunnarsdóttir skrifar
Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar.
Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar. Skjáskot/Stöð 2
Í annað sinn á þrjátíu ára starfsferli heyrði framkvæmdastjóri aðgerðarsviðs Landhelgisgæslunnar kallað „Mayday“ í stjórnstöðinni. Mikill viðbúnaður var þegar togbáturinn Dagur SK varð vélarvana fimm sjómílur vestur af Hafnarfirði í dag.

Þyrla Landhelgisgæslunnar var á sveimi yfir skipinu en björgunarsveitinni barst tilkynning rétt fyrir klukkan 14 í dag eftir að leki kom upp í skipi þar sem fimm manns voru um borð.

Landhelgisgæslan boðaði strax út þyrlu, sjóbjörgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum, sem og varðbátinn Baldur sem staddur var á Stakksfirði, björgunarbáta af varðskipinu Þór sem statt var í Helguvík, og nærliggjandi skip og báta.

Fimmtán mínútum síðar tilkynnti áhöfn togskipsins að þeir hefðu náð stjórn á lekanum. Viðbragði var þó haldið áfram og meðal annars farið með öflugar sjódælur áleiðis til skipsins.

„Þegar kallað er Mayday þá þýðir það neyð og þá þýðir ekkert annað en að setja allt á fullt. Það var gert í þessu tilviki. Smám saman fór áhöfnin að ná stjórn á lekanum og um hálftíma síðar var ljóst að þeir höfðu komist fyrir lekann og voru byrjaðir að dæla sjó úr vélarrúminu. Þá var smám saman dregið úr útkallinu,“ segir Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar.

Dráttarbáturinn Hamar frá Hafnarfirði dró svo bátinn til hafnar og komu þeir í land á fimmta tímanum. Öllum skipverjum heilsast vel.

„Ég er búin að vera starfandi hjá Landhelgisgæslunni í yfir þrjátíu ár. Þetta er í annað skiptið á mínu ferli sem ég heyri kallað „Mayday“. Við erum mjög sáttir við það vegna þess að þetta er alþjóðlegt uppkall þegar um neyð er að ræða. Þetta gerði það að verkum að allt fór á fullt hér til að byrja með. Það er svo alltaf hægt að draga úr útkallinu eftir því sem hlutirnir skána,“ segir Ásgrímur.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×